<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T12:47:44" skst="GÞÞ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 12:49:48 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T12:47:44">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ágætisræðu. Ég
    vildi spyrja hann út í nokkra þætti sem hafa komið fram. Maður getur
    stundum ruglast og ekki farið rétt með, en hv. þingmaður sagði að það væri
    mikilvægt að greiða niður skuldir. Nú liggur alveg fyrir að það er ekki
    verið að greiða niður skuldir, þvert á móti er lánsfjárjöfnuður mjög
    neikvæður. Við þekkjum það náttúrlega líka varðandi framkvæmd fjárlaga
    þessa árs að þar hefur skuldsetning aukist mjög, vegna þess að það er ekki
    hægt að líta á fjárlögin í plús og mínus heldur þurfa menn auðvitað að
    líta á lánsfjárjöfnuðinn. Ég vil spyrja hv. þingmann hvort hann hafi
    eitthvað mismælt sig hérna áðan. Sömuleiðis vildi ég spyrja hv. þingmann,
    af því að hann svaraði því ekki áðan, af hverju stjórnarflokkarnir lofuðu
    fyrir síðustu kosningar að hækka ekki skatta, því að það er augljóst að
    það er búið að hækka skatta um einhverja 60 milljarða og auðvitað vissu
    flokkarnir að hverju þeir gengu þegar þeir gengu til kosninga. Einnig vil
    ég spyrja hann, af því að ég hef vakið athygli á því að núverandi
    forsætisráðherra sagði það á sínum tíma í stjórnarandstöðu að þegar
    ríkisstjórnin gerði ekki nóg þá vildi Seðlabankinn gera meira í baráttunni
    gegn verðbólgu, hvort hann telji að forsætisráðherra hafi haft rangt fyrir
    sér þegar hún sagði það á síðasta kjörtímabili eða hvort það sé þannig að
    ríkisstjórnin sé ekki að gera nóg. En svo kannski að endingu, af því að
    hv. þingmaður hefur verið mjög ötull talsmaður landsbyggðarinnar, að það
    kom hér fram að þær skattahækkanir sem eru núna að koma fram munu koma
    mjög hart niður á bæði almenningi og fyrirtækjum á landsbyggðinni. Er það
    eitthvað sem veldur hv. þingmönnum áhyggjum?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>