<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T12:49:58" skst="SigurjÞ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!--x 2026-09-10 12:52:12 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T12:49:58">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni kærlega fyrir
    góðar spurningar. Fyrsti liðurinn í því að ná að greiða niður skuldir er
    að komast úr þeim fasa að vera að safna skuldum. Nú erum við vonandi að ná
    endum saman í fjárlögum næsta árs og síðan erum við auðvitað að líta til
    þess að um leið og það gerist og þjóðarhagur fer vaxandi þá lækka skuldir
    miðað við þjóðarframleiðslu. En svo má ekki alveg gleyma því að við sölu á
    Íslandsbanka fór einhver fjárhæð þar til greiðslu skulda, þannig að þetta
    er allt á réttri leið. Ég vona að hv. þingmenn Sjálfstæðisflokksins sjái
    það og ræði hlutina eins og þeir eru þannig að við séum ekki að skapa
    óþarfaverðbólguvæntingar úti í samfélaginu sem eru þá kannski ekki til
    þess fallnar að við náum niður verðbólgunni í sameiningu.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Hvað varðar hækkun skatta, við í Flokki fólksins höfum alltaf sagt
    og segjum enn: Við viljum ekki skattleggja fátækt. Það er náttúrlega númer
    eitt, tvö og þrjú og við höfum ekkert farið í grafgötur með það og við
    höldum það í heiðri og ætlum að stuðla að því. En síðan er það auðvitað
    með skattlagningar, eins og ég minntist á hér fyrr í umræðunni, hvenær
    maður er í rauninni að stofna til aukinna skatta. Það er auðvitað þegar
    menn fara að leggja á ráðin um útgjöld. Þegar menn gerðu það á árum áður,
    áður en þessi ríkisstjórn gerði sér grein fyrir — og höfðu eflaust ærnar
    ástæður til, eins og hefur komið fram hér í góðum ræðum
    stjórnarandstöðunnar, þá voru þeir auðvitað að einhverju marki að boða
    skattahækkanir síðar, þegar áraði betur. Nú getum við verið sammála um að
    það árar bara þokkalega vel. Það er ýmislegt sem bendir til þess að við
    getum náð hér meiri verðmætum út úr sjávarauðlindinni og fleiri þáttum. Ég
    held að við eigum að vera hóflega bjartsýn á framhaldið og nota það góðæri
    til að treysta stöðu ríkissjóðs.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>