<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T12:52:25" skst="GÞÞ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 12:54:44 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T12:52:25">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Það er ekki svo gott, þó að hv. þingmenn hafi
    völd, að þeir ráði verðbólguvæntingum. Fjármálaráð vakti athygli á því, og
    það var ekkert gert með það af meiri hluta hv. fjárlaganefndar, að það
    væri verið að auka skuldir verulega sem hefði neikvæð áhrif á
    verðbólguvæntingar. Það er bara staðreynd. Það er alveg ljóst að miðað við
    afkomu ársins var hallinn miklu meira en tvöfalt meiri, en sömuleiðis munu
    skuldir aukast mjög mikið. Meiri hluti fjárlaganefndar fjallaði bara
    ekkert um þetta, tók ekkert á þessu. Þetta fer ekkert frá okkur.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Hv. þingmaður svaraði engu um þessi ummæli núverandi
    forsætisráðherra og hefur augljóslega ekki áhyggjur af landsbyggðinni, ég
    skil það þannig, þegar kemur að þessari skattlagningu. Ég myndi nú ætla að
    það að skerða samkeppnishæfni ferðaþjónustunnar muni hafa sérstaklega vond
    áhrif á kjördæmi hv. þingmanns sem er að berjast við það að ná inn
    ferðamönnum og hefur gert margt mjög gott þar og mikilvægt að það gangi
    enn betur. En þegar kemur að því að stefna flokksins sé að skattleggja
    ekki fátækt þá hefur orðið breyting á t.d. varðandi sjúklingagjöld í tíð
    þessarar ríkisstjórnar. Það var markmið að lækka kostnaðarhlutdeild
    sjúklinga þannig að það væri svona nær því sem gerist á Norðurlöndunum og
    það hefur verið unnið að því síðustu tíu árin. En þessu hefur verið snúið
    við núna. Við Sjálfstæðismenn stóðum fyrir því að koma á þaki á kostnað
    fyrir hvern sjúkling en það er verið að setja núna á gjöld fyrir utan það
    fyrirkomulag. Er þetta ekki eitthvað sem veldur Flokki fólksins áhyggjum
    <ns:bjalla/> þegar kemur að svona gjaldtöku, því að oftar en ekki þannig
    að það fólk sem þarf á þessari þjónustu að halda er ekki sterkt
    fjárhagslega?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>