<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T12:54:53" skst="SigurjÞ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 12:57:03 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T12:54:53">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég vil þakka fyrir andsvarið. Það er alveg rétt, það
    er ekki okkar óskaleið að fara að hækka notendagjöld. Ég tek alveg undir
    með hv. þingmanni um áhyggjur hvað það varðar. Það verður að stilla þessu
    í hóf og ég treysti hæstv. heilbrigðisráðherra t.d. að útfæra þetta með
    þeim hætti að þetta gangi vel upp. Varðandi landsbyggðina og
    skattlagninguna á ferðaþjónustuna þá eru það einmitt þessir þættir sem þar
    voru nefndir. Það vill svo vel til að í gær var ég á fundi með Samtökum
    sveitarfélaga á Norðurlandi eystra þar sem var verið að ræða þessi mál.
    Fólk hafði áhyggjur af skattlagningu á baðlónin og þá einkum minni
    baðlónin. Ég held að það eigi einnig við um minni rekstur á landsbyggðinni
    alveg burt séð frá baðlónum, sem hafa verið að skila góðum hagnaði, gott
    ef það voru ekki rúmir 8 milljarðar á árinu 2023. Stóru baðlónin eru í
    góðum rekstri og geta eflaust ráðið við þá leiðréttingu á virðisaukaskatti
    sem frumvarpið boðar en auðvitað er rétt að hafa augun á minni ferðaþjónum
    hvað þetta varðar og ýmsar aðrar reglur. Mér finnst bara jákvætt að geta
    átt hv. þingmenn Sjálfstæðisflokksins að í því að leggja áherslu á að
    skoða rekstrarumhverfi minni aðila í ferðaþjónustu. Ég held að það sé
    mikils um vert og að eitt það versta fyrir þá sé hár vaxtakostnaður og ef
    við náum því fram með þessu frumvarpi, hallalausum fjárlögum, þá er til
    einhvers unnið, að ná þessari áætlun og fjárlögum næsta árs þannig að það
    geti stuðlað að lægri vöxtum.<!--Heyri ekki betur en að hann tali um ferðaþjóna. Finnst það alveg ganga.--></ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>