<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T12:57:15" skst="IIsak" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 12:59:27 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T12:57:15">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Sigurjóni Þórðarsyni fyrir hans
    ræðu. Ég hlakka til samstarfsins með honum í fjárlaganefnd á komandi
    vetri. Mig langar að halda áfram með þennan landsbyggðarvinkil. Hann ræddi
    hér um að hann hefði verið á fundi og þar hefðu menn einmitt verið að ræða
    baðlónin, aukinn virðisaukaskatt á baðlónin, og ég veit að menn hafa líka
    áhyggjur af kílómetragjaldinu. Einnig er verið að lækka framlag til
    sóknaráætlana landshlutasamtakanna og það er líka verið að skera niður um
    1,1 milljarð þegar kemur að farsæld barna og atvinnuráðgjafa
    landsbyggðarinnar. Ég ímynda mér að hann hafi heyrt þetta allt saman á
    fundinum því að það eru verulegar áhyggjur meðal sveitarstjórnarfulltrúa
    af þeim aðgerðum sem eru lagðar til í fjárlagafrumvarpinu fyrir næsta ár.
    Mér fannst hv. þingmaður aðeins koma inn á að hann hefði smá skilning á
    þessu þegar kemur að baðlónunum, sérstaklega þessum litlu.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Nú eru fjögur baðlón í okkar kjördæmi, Norðausturkjördæmi, sem hv.
    þingmaður þekkir eflaust til. Ef við horfum á Vök sem dæmi er hætt við að
    þau þurfi að loka yfir vetrartímann komi til þessarar hækkunar. Sér hv.
    þingmaður, sem formaður fjárlaganefndar, fyrir sér tækifæri til að beita
    sér í þessu, að draga til baka þessa hækkun á virðisaukaskatti þegar kemur
    að baðlónum? Við sjáum að það eru áskoranir fyrir ferðaþjónustu á
    landsbyggðinni og mikið búið að byggja undir það að geta boðið upp á
    ferðaþjónustu allt árið um kring. Það eru alls konar framkvæmdir
    fyrirhugaðar, hvort sem það er fjölgun gistirýma, stækkun hótela eða
    fleira, sem gæti m.a. þurft að fresta eða jafnvel hætta við ef þessi
    hækkun kemur til. Þetta eru allt samlegðaráhrif, eitt hefur áhrif á
    annað.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Mig langaði að spyrja hv. þingmann hvort hann sé reiðubúinn til að
    leggjast á eitt með okkur þingmönnum kjördæmisins og endurskoða þessa
    hækkun þegar kemur að baðlónunum.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>