<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T12:59:36" skst="SigurjÞ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 13:01:53 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T12:59:36">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Það er alveg ljóst að baðlónin hafa almennt skilað
    miklum ágóða og það er auðvitað, eins og ég nefndi hér, þannig að hagnaður
    fyrir fjármagnsliði var á níunda milljarð og afskriftir á árinu 2023. Ég
    nefndi að minni baðlónin væru mögulega áhyggjuefni en það eru fleiri
    þættir sem snúa þá að minni ferðaþjónustuaðilum á landsbyggðinni. Ég tel
    ekki raunhæft að fjárlaganefnd hniki þessu mikið við miðað við stöðuna og
    þau markmið sem við ætlum væntanlega að vera sammála um, þ.e. að ná
    ríkisfjármálunum saman þannig að tekjur dugi fyrir gjöldum. Ég held að það
    sé mjög mikilvægt. Þetta er einn liður í því. Ég tel að þessu verði ekki
    hnikað til en ég er tilbúinn að leggja talsverða vinnu og áherslur í það
    að skoða sérstaklega hag minni ferðaþjónustuaðila á landsbyggðinni og bara
    í landinu og ekki endilega að taka þennan þátt út úr hvað það varðar. Mér
    finnst það ekki vera raunhæft út frá þeirri stöðu sem uppi er.</ns:mgr>

    <ns:mgr>En það eru líka fleiri þættir sem ég nefndi sem rétt er að staldra
    við og geta gefið enn meiri fjármuni. Þá vil ég nefna að nýta þær
    veiðiheimildir sem hafa verið gefnar út og ég skora á hv. þingmenn
    Framsóknarflokksins að skoða það. Ef þeir hafa myndað sér skoðun á því að
    helmingurinn af ufsaaflanum sé ekki nýttur nema í eitthvert brask þá eru
    þarna fjármunir sem er eðlilegt fyrir hagsýna húsmóður og hagsýna þingmenn
    að skoða; að menn fari að nýta þessa auðlind í annað en tegundatilfærslur
    og eitthvert brask. Það væri fróðlegt að heyra afstöðu hv. þingmanns til
    þess ef hún hefur myndað sér skoðun hvað það varðar.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>