<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T13:02:03" skst="IIsak" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 13:04:31 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T13:02:03">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hans andsvar. Okkar
    stærsta verkefni er að ná tökum á verðbólgu og vöxtum. Það eru allir
    sammála um það markmið en leiðina að markmiðinu erum við kannski ekki öll
    sammála um. Það er þessi vegferð og það er þessi trúverðugleiki sem þarf
    líka að skapast varðandi vegferðina. Þegar kemur að því hvert við eigum að
    líta — það sem ég hef áhyggjur af og er að horfa til eru fjölskyldurnar í
    landinu og lítil og meðalstór fyrirtæki. Ég hef áhyggjur af því að þær
    tillögur sem eru lagðar fram í fjárlögunum muni m.a. hafa veruleg áhrif á
    heimilisbókhald fjölskyldna um allt land.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þegar kemur að framkvæmd fjárlaganna og trúverðugleikanum — nú
    munum við sitja saman í fjárlaganefnd á komandi vetri. Hvað varðar
    fjárlögin 2026 þá hefur þróunin verið með þeim hætti að hallinn sem átti
    upphaflega að vera 15 milljarðar, var síðan hækkaður í 27, er orðinn 67
    milljarðar. Það stefnir í 67 milljarða kr. halla á þessu ári. Hver er þá
    trúverðugleikinn núna hvað það varðar að þetta gangi eftir á næsta ári?
    Fjárlögin byggja ekki á nýjustu spá Seðlabankans en hún verður vissulega
    uppfærð á milli umræðna og ég hef fullan skilning á því. En þróunin hefur
    því miður verið með þeim hætti að hagvöxtur hefur minnkað, atvinnuleysi
    aukist og vextir og verðbólga hækkað. Þegar kemur að trúverðugleikanum þá
    langar mig líka að spyrja, af því að nú munum við einmitt þurfa að sýna
    aðhald þegar kemur að fjárlögunum á næsta ári, hvort þetta verði ekki sama
    niðurstaða varðandi hallann.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Mig langar aðeins að koma að Fljótagöngunum af því að talað hefur
    verið um, og hæstv. forsætisráðherra talaði um það í gær, að það ætti að
    byrja að bora fyrir Fljótagöngum. En það kemur skýrt fram í
    fjárlagafrumvarpinu að það þurfi aukafjárframlag frá ríkissjóði inn í
    innviðafélagið til að ráðast í óarðbærar framkvæmdir líkt og Fljótagöng.
    Hins vegar er ekki króna áætluð í fjárlögum fyrir þessari framkvæmd. Mig
    langar að spyrja hv. þingmann: Býst hann við því að fjárlaganefnd gæti átt
    von á því að fá beiðni um fjárauka til að geta ráðist í þetta? Eða eru
    þetta orðin tóm og á ekkert að ráðast í að bora Fljótagöngin á næsta
    ári?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>