<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T13:04:41" skst="SigurjÞ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 13:06:34 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T13:04:41">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég verð nú að fagna sérstaklega þeim orðum sem komu
    fram í ræðu hv. þingmanns um að við þurfum að auka trúverðugleikann, að
    það sem við setjum fram sé trúverðugt og traust. Við minnkum væntingar um
    verðbólgu ef það sem við leggjum fram skapar traust til að byggja á. Það
    skiptir máli og ég fagna þeim orðum. Það er gott að ábyrgur málflutningur
    komi frá stjórnarandstöðunni því að stundum hefur það verið þannig að menn
    hafa sett sig á móti öllum tekjuöflunarleiðum, hvaðan sem þær koma, hvort
    sem ferðaþjónustan á í hlut eða annað, án þess að koma með eitthvað annað
    á móti um það hvaðan eigi þá að ná tekjunum. Menn hafa jafnvel viljað auka
    kostnað ríkisins án þess að setja fram hvaða annan kostnað eigi þá að
    skera niður. Þannig að ég fagna þessu. En ég er alveg sannfærður um að
    Fljótagöng koma og það verður byrjað innan tíðar á að framkvæma þau. Síðan
    mun það verða útfærsluatriði hvernig það verður.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Við fengum þetta frumvarp hér fyrr í vikunni og erum að skoða það.
    Ég hlakka til þess að fara yfir það með hv. þingmanni þannig að við fáum
    skýrari mynd af því hvernig þetta muni allt ganga fyrir sig. Það er
    talsverð vinna fram undan og ég hlakka til góðs samstarfs við hv. þingmann
    um það að þetta verði trúverðugt og gott plagg. Ég treysti á þingmenn
    stjórnarandstöðunnar til að gera þetta góða fjárlagafrumvarp að góðum
    fjárlögum fyrir árið 2027.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>