<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T13:06:52" skst="IIsak" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 13:17:15 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T13:06:52">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Við ræðum hér fjárlagafrumvarp ársins 2027 og þar
    kemur fram markmiðið að það eigi að ná jafnvægi í ríkisfjármálum sem er
    mjög mikilvægt markmið og um það þarf í rauninni ekkert að deila því að
    ríkissjóður getur ekki verið rekinn áfram með viðvarandi halla og safnað
    skuldum og látið sífellt stærri hluta tekna sinna fara í vaxtagreiðslur.
    En spurningin er hins vegar ekki hvort markmiðið sé rétt og hvort við séum
    öll sammála því. Spurningin í mínum huga er einfaldlega hvort þetta
    frumvarp sé trúverðug leið til að ná því markmiði og hvort við sem hér
    sitjum völdum því verkefni að láta áætlanirnar standast því að sú ábyrgð
    hvílir á okkur öllum en um hana er sjaldan rætt.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ríkisstjórnin áætlar að það verði 4,7 milljarða afgangur af 1.700
    milljarða veltu. Það eru tæpar 3 kr. af hverjum 1.000 kr., um 0,3%. En
    halli ársins 2026 sýnir hvers vegna það skiptir máli því að fjárlög þessa
    árs gerðu ráð fyrir 28 milljarða halla. Núna í byrjun septembermánaðar,
    stefnir í nærri 70 milljarða halla. Afkoman verður rúmlega 39 milljörðum
    lakari en Alþingi samþykkti hér fyrir innan við ári. Hallinn í ár, tæpir
    70 milljarðar, er meiri en allt ríkið ver í lyf og lækningavörur á heilu
    ári. Hann er meiri en allt framhaldsskólastigið kostar, allir
    framhaldsskólar landsins, bara hallinn einn á þessu ári. Hann er á við
    fjórar nýjar legudeildir eins og þá sem verið er að byggja núna við
    Sjúkrahúsið á Akureyri og frávikið eitt, það sem bættist við umfram það
    sem Alþingi samþykkti, er jafn hátt öllum fjárfestingarframlögum til
    samgangna á næsta ári. Heilt ár af vegaframkvæmdum bara horfið í fráviki á
    einu ári, horfið út í hafsauga. Tvöfaldar barnabætur, átta sinnum nýja
    innviðagjaldið, sem er reyndar óútfært. Ég get haldið áfram. Þetta eru
    ástæðurnar fyrir því að framkvæmd fjárlaga skiptir ekki minna máli heldur
    en fjárlögin sjálf. Það er ekki nóg að samþykkja rétta tölu í desember.
    Það þarf að viðhalda henni allt árið. Hver milljarður sem fer fram úr er
    milljarður sem fer ekki í þjónustu, innviði eða lækkun skulda og kemur til
    baka sem vaxtagjöld árið eftir. Hallinn, við vitum það, er ekki eitthvað
    til þess að leysa í excel-skjali eða er eitthvað bókhaldsatriði. Hann er
    tekinn af einhverju öðru í staðinn.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Frú forseti. Veltum því fyrir okkur: Hvar er hallinn tekinn? Hvar
    er hann lagður á? Er hann lagður á einstætt foreldri og fólk sem býr langt
    frá vinnu og þjónustu og þarf að nýta sér m.a. bílinn sem eina
    samgöngumátann til að geta sótt vinnu, þjónustu og skóla? Hér virðist
    ýmislegt skorta þegar kemur að því hvernig við ætlum að afla þessara
    gjalda og hvort þau raunverulega skili árangri og hvort þær tekjur sem við
    erum að afla á þessu ári séu að skila sér að fullu. Því miður erum við
    hrædd um að það gangi ekki eftir. En hvaða afleiðingar hafa þessar
    hækkanir? Hvaða afleiðingar hefur það að hér er verið að leggja til 5,2%
    hækkun opinberra gjalda tvöfalt umfram verðbólgumarkmið Seðlabanka
    Íslands? Hvaða áhrif hefur það á venjulegt fólk? Hvaða áhrif hefur það á
    landsbyggðina? Það er ekki nóg að byrðunum sé dreift með sanngjörnum
    hætti. Það þarf að sýna fram á það hvernig það er gert. Reikningurinn
    endar ekki bara hjá heimilunum. Fjárfesting atvinnuveganna dregst saman um
    tæp 3% á næsta ári samkvæmt frumvarpinu sjálfu. Svarið er að lækka framlög
    til nýsköpunar um tíund og skera endurgreiðslur vegna rannsókna niður um
    1,7 milljarða. Þegar fjárfesting dregst saman á ríkið að skapa hvata. Það
    á ekki að fjarlægja þá.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Af 44 milljarða aðhaldi er stór hluti frestun framkvæmda sem
    frumvarpið sjálft viðurkennir að geti kallað á fjárveitingu síðar.
    Kostnaðinum er hér bara ýtt fram í tímann, hann hverfur ekkert.
    Sjúkratryggingar fara um 12 milljarða fram úr áætlunum á þessu ári og
    frumvarpið segir að grípa þurfi til aðgerða vegna þessa en segir ekki til
    hvaða aðgerða þarf að grípa. Rekstur Landspítalans, Sjúkrahússins á
    Akureyri og heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni stefnir í 11 milljarða
    framúrkeyrslu. Frumvarpið gerir áfram ráð fyrir rekstrarhalla og segir að
    hagræðing hafi gengið hægar en vonir stóðu til.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Stöldrum aðeins við hér. Hér eru engar upplýsingar um hvað eigi að
    gera eða hvernig til að koma í veg fyrir framúrkeyrslu með svipuðu sniði
    árið 2027. Hæstv. fjármálaráðherra talaði um aga hér í ræðu sinni í dag.
    Við þurfum að fá að sjá leiðina, við þurfum að sjá aðgerðirnar. Það er það
    sem við í stjórnarandstöðunni höfum verið að kalla eftir. Í þessu ljósi
    vil ég líka nefna nýja Landspítalann því framlag til verkefnisins er
    lækkað um tæpa 10 milljarða frá því sem fjármálaáætlun gerði ráð fyrir í
    júní. Rökin eru að félagið eigi 20 milljarða í ónýttum heimildum og
    tímaáætlun haldist með því að ganga á þær. En 20 milljarðar í ónýttum
    heimildum eru ekki merki um að verkefnið sé á áætlun. Það er merki um að
    framkvæmdir hafi gengið hægar en gert var ráð fyrir. Það skortir svolítið
    gagnsæi og það þýðir að opnun nýs Landspítala mun verða síðar en áætlanir
    gerðu ráð fyrir. Eða hvað? Getur hæstv. ráðherra ábyrgst að nýr spítali
    opni á þeim tíma sem áætlað hefur verið? Hvað mun hvert ár seinkunar
    kosta? Hver mánuður sem nýr spítali frestast um veldur tjóni og skaða,
    m.a. hjá starfsfólki og sjúklingum, starfsfólk sem er undir miklu álagi í
    dag.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Sama gildir um menntamálin. Óvenjustórir árgangar eru að hefja nám
    í framhaldsskólum. Samt er skólunum gert að mæta 1,2 milljarða
    aðhaldskröfu og líka gert að greiða upp uppsafnaðan halla. Við megum ekki
    segja að það sé verið að passa upp á skólana þegar tölurnar segja okkur
    allt aðra stöðu.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég hef einnig áhyggjur af því hvernig árangurinn er mældur. Það er
    risastórt atriði. Markmið málefnasviðanna eru almenn, það er viðvarandi
    þema hérna að stytta biðtíma, auka gæði, efla mönnun. Alþingi fær ekki
    töluleg viðmið í skjalinu sem það samþykkir. Mælikvarðarnir eru á vefsíðu.
    Það þarf að hugsa þetta allt saman betur. Fjármálaáætlun setti markmið um
    að fólk fengi hjúkrunarrými innan 90 daga. Það markmið er ekki að finna í
    frumvarpinu. Lög um opinber fjármál byggjast á varfærni, festu og gagnsæi
    og þess vegna þurfum við að breyta vinnubrögðunum. Forsendur uppfærðar á
    hverju stigi frá fjármálaáætlun til ríkisreiknings, mælanleg markmið í
    þingskjölunum sjálfum, raunverulegir varasjóðir, fjáraukalög fyrir
    ófyrirséð atvik, ekki árlega leiðréttingu á því sem var
    fyrirsjáanlegt.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Með sama ramma myndum við í Framsókn hugsanlega forgangsraða með
    öðrum hætti. Mig langar að nefna þrennt hér þar sem tíminn leyfir ekki
    mikið meira en við myndum gjarnan vilja sjá hvata fyrir fjárfestingu og
    nýsköpun í stað þess að skera niður þegar fjárfesting dregst saman. Við
    myndum vilja sjá framkvæmd fjárlaga sem styður við að tryggja að áætlunum
    sé fylgt og að til sé varasjóður sem dugar ef áföll verða. Ríkið
    verðtryggi ekki eigin tekjur á meðan stuðningur við fjölskyldur er
    frystur.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég styð heils hugar markmið um hallalaus
    fjárlög en afgangur sem byggist á viðkvæmum og jafnvel umdeilanlegum
    forsendum, auknum álögum og frestun kostnaðar er ekki nægilega
    trúverðugur. Fjárlög ssem standast eru lykilatriði, ekki aðeins markmið um
    hallalaus fjárlög. Fjárlög næsta árs hafa mikil áhrif á það hvort hægt sé
    að lækka vexti, styrkja heilbrigðisþjónustu, mennta stóra árganga á
    viðunandi hátt og tryggja eðlilegt viðhald í landinu, allt á sama tíma.
    Fjárlög sem standast eru eitt stærsta velferðarmál þjóðarinnar. Það er
    verkefni Alþingis að veita ríkisstjórninni raunverulegt aðhald og krefjast
    svara þegar áætlanir standast ekki eða virðast settar fram á veikum
    grunni. Við getum ekki kastað ryki í augu fólks, við verðum að leggja fram
    raunhæfar áætlanir og fylgja þeim eftir þannig að þær skili sömu
    niðurstöðu og við samþykkjum hér í þingsal.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Við í Framsókn munum leggja okkur fram og sinna okkar hlutverki af
    festu, fagmennsku og ábyrgð og við munum koma að verkefninu með
    lausnamiðuðum og uppbyggilegum hætti en líka með gagnrýni vegna þess að
    við hér inni erum öll í vinnu fyrir fólkið í landinu og eitt stærsta
    hagsmunamálið okkar hér inni á að vera að ná tökum á verðbólgu og
    vöxtum.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>