<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="fjmrh." frhr="0" id="r2026-09-10T13:17:23" skst="DMK" tegflm="R" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 13:18:54 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T13:17:23">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Forseti. Ég þakka hv. þm. Ingibjörgu Isaksen fyrir ágæta ræðu og
    brýningu sem ég tek heils hugar undir. Ég vil taka fram, eins og ég gerði
    í andsvörum hér áðan, að það eru þrjú meginverkefni sem ég í mínu embætti
    hef staðið fyrir til að tryggja nákvæmlega það sem hv. þingmaður vék að,
    sem er að fjárlögum sé framfylgt. Það er að ljúka við innleiðingu
    rammasettra ríkisfjármála sem er verkefni sem hófst á dögum fyrirrennara
    míns, Friðriks Sophussonar, en var aldrei lokið en hefur núna verið að
    fullu innleitt. Núna erum við síðan að leggja áherslu á framkvæmd
    fjárlaga. Þriðja verkefnið, sem er nýlunda, er endurmat útgjalda. Ég tek
    hins vegar undir með hv. þingmanni að það megi, held ég, herða á aðhaldi
    Alþingis. Alþingi setur þennan ramma. Alþingi á líka að fylgja honum
    eftir. Nú fengum við upplýsingar um það við upphaf þingfundar að hv.
    þingmaður mun nú taka sæti í fjárlaganefnd og mig langar til að spyrja
    hana hvort hún sé mér sammála um mikilvægi þess að fjárlaganefnd beiti sér
    til að tryggja einmitt eftirfylgni við framkvæmd fjárlaga og með hvaða
    hætti hún sér fyrir sér að beita sér í fjárlaganefnd.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>