<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T13:19:03" skst="IIsak" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 13:20:39 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T13:19:03">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir andsvarið og fagna því
    að við erum nokkurn veginn sammála þegar kemur einmitt að þessu, framkvæmd
    fjárlaga. Eins og ég kom að í máli mínu áðan þá eru markmiðin um hallalaus
    fjárlög jákvæð og góð og ég held að allir styðji þau. Það er bara spurning
    um tímasetninguna, það er spurning um aðferðafræðina til að ná þeim.
    Hafandi skoðað þessi fjárlög og áhrifin sem þau hafa m.a. á venjulegt
    vinnandi fólk hér í landinu og fyrirtæki um land allt er ég smeyk um að
    þessi markmið náist ekki, að trúverðugleikinn varðandi þessi fjárlög sé
    ekki meiri en svo að ríkisstjórnin sjálf trúi ekki á verðbólgumarkmið
    Seðlabanka Íslands. Það er miður.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þegar kemur að vinnu fjárlaganefndar við að fylgja eftir fjárlögum
    þá mun ég leggja mitt af mörkum, vissulega. En það er ekki þar með sagt að
    ég sé sammála öllu því sem kemur fram hér í fjárlögunum og þeim aðgerðum
    sem ríkisstjórnin er að leggja til. En það er afar mikilvægt að stofnanir
    og fyrirtæki fylgi því eftir sem er sagt hér, vissulega. Við þurfum samt
    líka að vera raunsæ og við verðum að trúa á verkefnin sjálf og það er afar
    mikilvægt. En eins og ég sagði áðan í minni ræðu þá munum við í Framsókn
    vissulega koma að með lausnamiðuðum og uppbyggilegum hætti en líka sýna
    ríkisstjórninni aðhald.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>