<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="fjmrh." frhr="0" id="r2026-09-10T13:20:52" skst="DMK" tegflm="R" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 13:23:06 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T13:20:52">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Forseti. Ég þakka hv. þm. Ingibjörgu Isaksen fyrir svarið. Ég geri
    mér grein fyrir því að þingið stendur sig mjög vel í aðhaldi við
    ríkisstjórnina. En það sem við erum að tala um hér er aðhaldið gagnvart
    rekstri hins opinbera og við erum sammála um að það má bæta. Ég vil þó
    taka fram að í langsamlega flestum tilfellum er rekstur ríkissjóðs og
    rekstur ríkisaðila innan fjárheimilda en þarna eru veikleikar sem ég held
    að sé mjög mikilvægt að fjárlaganefnd rannsaki sérstaklega og skoði vegna
    þess að það er á endanum á grunni laga sem samin eru á Alþingi sem þessar
    glufur opnast.</ns:mgr>

    <!--segir "samin á Alþ.", á kannski við "samþykkt" en þori ekki að breyta/st.-->

    <ns:mgr>Mig langaði að víkja að tveimur punktum sem hv. þingmaður kom inn
    á. Í fyrsta lagi talaði hún um niðurskurð til rannsókna og þróunar. Það er
    ekki rétt. Í fjárlögum er gert ráð fyrir ákveðnu umfangi. Þetta er það sem
    kalla mætti opinn krana, einn af fjölmörgum í fjárlögum, og það fer
    einfaldlega eftir eftirspurninni hversu umfangsmikill þessi kostnaður er.
    Það er einungis verið að uppfæra hann á grundvelli spár Rannís um það
    hversu umfangsmikill kostnaðurinn verður þannig að þarna er enginn
    samdráttur.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Varðandi LSH held ég að það sé mjög mikilvægt, og það er raunar
    síðari spurning mín, að við veltum fyrir okkur mjög vandlega ramma
    opinberra framkvæmda. Það er alveg rétt að þetta verkefni hefur farið fram
    úr tímaáætlunum. Að hluta til er það vegna þess hversu þung í vöfum þessi
    verkefni verða vegna reglna sem settar eru hér í þessum sal. Þarna þurfum
    við að axla ábyrgð. Ég mun síðar á þessu þingi koma fram með frumvarp til
    laga um fjárfestingar ríkisins sem beinlínis hefur það að markmiði að koma
    betri aga á þessi verkefni. En við þurfum að huga að fleiru og ég vænti
    góðs samstarfs við hv. þingmann og hennar kollega um þessar
    umbætur.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>