<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T13:23:13" skst="IIsak" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 13:25:03 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T13:23:13">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir hans seinna andsvar.
    Einmitt þegar kemur að framkvæmdum og Framkvæmdasýslunni þá bind ég vonir
    við að þetta frumvarp muni ná utan um það af því að maður heyrir það utan
    að sér að m.a. barna- og menntamálaráðuneytið sé að leita til
    sveitarfélaga varðandi uppbyggingu og stækkun verkmenntaskóla því að það
    treysti hreinlega ekki Framkvæmdasýslunni til að fara í verkefnið. En
    þegar kemur að opinberum stofnunum og aðhaldi þá getur fjárlaganefnd gert
    eitt, en svo er líka annað hvað ráðuneytin geta gert og ráðherrarnir geta
    gert. Við sjáum að hallinn hjá Sjúkratryggingum Íslands er um 12
    milljarðar. Hvað er hægt að gera í tengslum við það og koma í veg fyrir
    það? Og hvernig ætlar ráðuneytið að bregðast við t.d. kjarasamningum lækna
    þegar við horfum á hallarekstur heilbrigðisstofnana? Er sanngjarnt að saka
    opinberar stofnanir eins og heilbrigðisstofnanir um hallarekstur þegar
    ríkið gerir samninga við sérfræðilækna og lækna og mætir ekki
    kjarasamingunum, þ.e. hækkunum, og þegar gerðir eru leigusamningar eins og
    fyrir HSN á ákveðnum forsendum en hækkunum ekki mætt þegar kemur að
    leigusamningum?</ns:mgr>

    <ns:mgr>Það er ýmislegt sem þarf að skoða í þessu og ýmislegt sem hægt er
    að gera betur því við þurfum líka að vera sanngjörn. Við þurfum að vera
    með raunhæfar væntingar, raunhæfar áætlanir og þá er auðveldara líka að
    fylgja þeim eftir, ekki vera með einhverjar vonir og væntingar um að
    ákveðnar tekjur skili sér, í rauninni áætlanir sem eru jafnvel byggðar á
    sandi. Við þurfum að vera heiðarleg þegar kemur að þessu og þar getum við
    í rauninni klárlega unnið saman.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>