<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T13:25:19" skst="GrímG" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 13:33:39 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T13:25:19">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra fyrir
    framsöguna á fjárlagafrumvarpinu og einnig þá umræðu sem fram hefur farið
    hér í dag á meðal hv. þingmanna. Fjárlagafrumvarpið fyrir árið 2027 markar
    mikilvægt skref í átt að ábyrgum og sjálfbærum ríkisfjármálum.
    Meginboðskapur fjárlagafrumvarpsins fyrir 2027 er skýr. Við verðum að ná
    jafnvægi í rekstri ríkisins og við megum ekki eyða meiru en við öflum.
    Heilbrigð ríkisfjármál eru forsenda stöðugs efnahagslífs, traustrar
    velferðar og bættra lífskjara til framtíðar. Í frumvarpinu er stefnt að um
    5 milljarða kr. afgangi. Það er mikilvægur áfangi eftir mörg ár þar sem
    ríkissjóður hefur glímt við verulegan halla og aukna vaxtabyrði.
    Uppsafnaður halli frá 2026 er 866 milljarðar kr. og við verðum að stöðva
    þennan hallarekstur. Efni frumvarps hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra
    er skýr vísbending um að ríkisstjórnin sé tilbúin að taka á vandanum í
    stað þess að fresta honum og það er mikilvægt skref.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þegar ríkið eyðir meiru en það aflar til lengri tíma hefur það
    áhrif á allt samfélagið. Hallarekstur ríkisins er ekki bara mál
    fjármálaráðuneytisins eða tölur í excel-skjölum. Við þurfum að tala hreint
    út um stöðu ríkissjóðs. Hún er ekki einkamál stjórnvalda ef hún hefur
    áhrif á allt samfélagið. Það er ekki sjálfbært að fjármagna aukin útgjöld
    með lántökum. Tekjur og gjöld verða að vera sem næst í jafnvægi. Við getum
    ekki heldur leyft okkur að líta á vexti sem ríkið þarf að greiða sem
    óhjákvæmilegan kostnað. Hver króna sem fer í vexti verður ekki notuð í
    heilbrigðisþjónustu, menntun, löggæslu, samgöngur eða félagslegt öryggi.
    Þegar skuldabyrði eykst minnkar svigrúmið. Þegar vextir hækka verður
    erfiðara að verja grunnþjónustuna og þegar ríkissjóður er veikur verður
    hann berskjaldaðri fyrir sveiflum í efnahagslífinu. Þess vegna er
    hallalaus rekstur ekki andstæða velferðar, hann er ein af forsendum þess
    að við getum staðið undir velferðinni. Við getum ekki leyft okkur að taka
    velferðina að láni. Það er auðvelt að lofa auknum útgjöldum. Það er
    auðvelt að segja að allar þarfir séu brýnar og forgangsröðun sé erfið.
    Ábyrgir stjórnmálamenn lofa ekki öllum öllu. Verkefnið er að velja,
    forgangsraða og tryggja að það sem skiptir mestu máli sé fjármagnað til
    framtíðar.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Einn af styrkleikum þessa frumvarps er að áherslan er ekki
    eingöngu á aukna tekjuöflun heldur einnig á betri nýtingu almannafjár. Við
    þurfum að geta svarað því að hvert og eitt verkefni sé að skila þeim
    árangri sem að var stefnt. Ef svo er ekki þarf að endurskoða og eftir
    atvikum hætta við verkefnið. Þar kemur að endurmati útgjalda sem stefnt er
    að. Það er ekki árás á opinbera þjónustu að spyrja hvort hún sé vel rekin.
    Það er ekki árás á starfsfólk hins opinbera að kalla eftir skilvirkni. Það
    er ekki árás á velferðarkerfið að vilja tryggja að meiri hluti
    fjármagnsins fari í þjónustuna sjálfa en ekki óþarfaflækjustig, tvíverknað
    eða ómarkvissa stjórnsýslu. Við eigum að verja grunnþjónustuna en við
    eigum einnig að vera tilbúin að endurskoða það sem betur má fara, einnig í
    grunnþjónustunni. Góð stjórnun, skýr verkaskipting, samræmd innkaup,
    einfaldir verkferlar og markviss forgangsröðun geta skilað verulegum
    árangri án þess að dregið sé úr gæðum þjónustunnar. Stundum snýst ábyrgð
    ekki um að gera minna heldur um að gera betur og í því sambandi ber að
    líta á hagræðingu.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Frú forseti. Í þessu frumvarpi er horft til þess hvernig hægt sé
    að fjármagna uppbyggingu og verndun innviða sem eru undir miklu álagi.
    Íslensk náttúra er auðlind sem er í eigu þjóðarinnar. Hún hefur mikið
    gildi fyrir okkur sem hér búum en hún er einnig mikilvægur grundvöllur
    ferðaþjónustunnar. Álagið á marga ferðamannastaði hefur aukist hratt. Það
    kallar á betri stíga, salerni, merkingar, eftirlit, björgunaraðstöðu og
    náttúruvernd. Við getum ekki sætt okkur við að náttúruperlur láti verulega
    á sjá vegna fjölda ferðamanna sem þangað koma. Við getum ekki heldur
    ætlast til þess að íslenskur almenningur beri allan kostnað við
    uppbyggingu og innviði á slíkum stöðum. Rétt útfærð gjaldtaka er hvort
    tveggja sanngjörn og skynsamleg. Hún getur líka tryggt betri aðstöðu fyrir
    gesti, betri vernd fyrir náttúruna og minni kostnað fyrir íslenska
    skattgreiðendur.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Fjárlagafrumvarpið hefur mikilvægu hlutverki að gegna í baráttu
    okkar gegn hárri verðbólgu. Við vitum að verðbólga bitnar ekki jafnt á
    öllum og kemur harðast niður á þeim sem hafa minnst svigrúm. Verðtrygging
    er mjög útbreidd í okkar samfélagi, svo sem af húsnæðislánum og
    leigusamningum. Ríkisstjórnin hefur kynnt að hún stefni að því að fasa út
    verðtryggingu og það verður spennandi að sjá fyrstu skref í því efni
    fljótlega. Verðbólga rýrir kaupmátt og gerir heimilum erfiðara fyrir að
    skipuleggja framtíðina. Hún hækkar kostnað fyrirtækja, dregur úr
    fjárfestingu og getur grafið undan störfum og samkeppnishæfni.
    Ríkisfjármálin eru ekki eina orsök verðbólgu en þau skipta máli. Þegar hið
    opinbera eyðir um efni fram eykst eftirspurnin í hagkerfinu og þrýstingur
    myndast á verð og vexti. Með því að færa ríkissjóð í betra jafnvægi er
    dregið úr þeim þrýstingi. Þess vegna er ábyrg fjármálastefna einnig
    kjaramál. Það er ekki sjálfbært að hækka laun ef verðlag hækkar strax á
    eftir með öllum þeim afleiðingum sem fylgja hærra verðlagi.
    Langtímalausnin felst í stöðugra efnahagsumhverfi, traustum ríkisfjármálum
    og aðgerðum sem verja kaupmátt almennings. Mikil lántaka ríkissjóðs getur
    leitt til þess að vextir hækki þar sem eftirspurn eftir lánsfé eykst og
    vaxtabyrði lendir á almenningi og getur leitt til verri kjara fyrir
    fyrirtæki og ríkissjóð. Betri staða ríkissjóðs getur því skapað skilyrði
    fyrir lægri vöxtum til lengri tíma. Hún mun auðvelda heimilum að standa
    undir húsnæðislánum og fyrirtækjum að ráðast í uppbyggingu. Við skulum þó
    vera raunsæ. Fjárlagafrumvarpið eitt og sér lækkar ekki vexti en það getur
    lagt grunn að trausti og stöðugleika. Það getur sýnt að stjórnvöld séu
    tilbúin að taka ábyrgð og vinna með öðrum aðilum að því að ná verðbólgu
    niður og þá fylgir lækkun vaxta.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Við lok þessarar 1. umræðu gengur frumvarpið til hv.
    fjárlaganefndar og þar verður farið vandlega yfir einstaka þætti
    frumvarpsins. Við þurfum að ræða tekjuöflun, gjöld, forgangsröðun og áhrif
    á heimili og fyrirtæki af ábyrgð. Við þurfum að vera gagnrýnin en
    jafnframt ærleg við þessa vinnu í nefndinni. Það er ekki nóg að gagnrýna
    hvert aðhaldsskref án þess að benda á raunhæfan valkost. Sá sem vill auka
    útgjöld verður að segja hvernig þau eigi að fjármagna. Sá sem vill lækka
    gjöld verður að sýna hvaða verkefnum eigi ekki að sinna og sá sem hafnar
    afgangi eða aðhaldi verður að svara því hvernig hann hyggist takast á við
    hallann, vaxtagreiðslurnar og áhættuna sem fylgir skuldasöfnun. Heimili og
    fyrirtæki þurfa að forgangsraða á hverjum degi. Þau þurfa að taka erfiðar
    ákvarðanir þegar tekjur duga ekki fyrir öllum útgjöldum. Ríkið verður að
    lúta sömu grundvallarlögmálum. Það er ekki ósanngjarnt að segja það, það
    er nauðsynlegt.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Í þessu frumvarpi til fjárlaga er tekið á málum af ábyrgð,
    verkefnum er forgangsraðað, reksturinn er bættur og ríkissjóður er færður
    í meira jafnvægi en verið hefur. Fjárlagafrumvarpið boðar afgang í rekstri
    ríkissjóðs. Það leggur áherslu á betri nýtingu almannafjár. Það styrkir
    forsendur verðstöðugleika. Það stuðlar að meiri trúverðugleika á
    efnahagslegan stöðugleika. Það skapar von um að hægt verði að verja
    grunnþjónustuna betur til framtíðar vegna þess að ríkissjóður verði betur
    í stakk búinn til að standa undir henni. Við eigum að ræða útfærslurnar af
    alvöru. Við eigum að leiðrétta það sem betur má fara en við eigum ekki að
    missa sjónar á aðalatriðum og við megum ekki fresta því að taka erfiðar
    ákvarðanir.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Frú forseti. Fjárlagafrumvarpið fyrir árið 2027 hefur skýra stefnu
    og það mikilvæga markmið að koma ríkisfjármálum á traustari grundvöll. Það
    er jákvætt. Það er skynsamlegt og það er löngu tímabært. Með ábyrgri
    forgangsröðun, betri nýtingu almannafjár og skýrri sýn til framtíðar getum
    við styrkt ríkissjóð, varið velferðina og skapað betri skilyrði fyrir
    heimili, fyrirtæki og komandi kynslóðir. Ég fagna því þeirri stefnu sem
    birtist í frumvarpinu og styð markmið um að færa ríkissjóð úr langvarandi
    halla í jafnvægi. Ég hlakka til vinnu við meðferð málsins í
    fjárlaganefnd.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>