<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T13:36:14" skst="GrímG" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 13:38:22 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T13:36:14">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrir hans
    andsvar. Viðreisn — hvað gerðist eiginlega? Þetta er svona dálítið eins og
    kafli í einhverri bók. En kannski er það sem gerðist það að þegar þarf að
    loka fjárlagagati verða menn að horfa til þess að bæði sé hægt að beita
    aðhaldi en líka að auka tekjur. Mér virðist, af því að ég hef bara verið
    að skoða fjárlögin nú síðustu daga eins og aðrir hv. þingmenn, að nú séum
    við að beita aðhaldi þannig að það séu 2 kr. í aðhald á móti 1 kr. sem við
    leggjum í aukin gjöld.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Hv. þingmaður nefndi náttúrupassann. Ég hef ekki séð neina
    útfærslu á honum. Hann hefur ekki verið útfærður þannig að það verður
    áhugavert að sjá hvernig hann kemur þá við landið í heild, hvort það
    verður að einhverju leyti reynt að nota hann til að ýta ferðamönnum frekar
    á hin svokölluðu kaldari svæði. Ég þekki það ekki, en það gæti komið til
    álita. Tekjuskatturinn — einhverjir hafa haldið því fram að það sé einhver
    leynileið í að hækka tekjuskattinn. En það er þannig að það er 1% sem
    hefur verið lagt á; viðmiðunin hefur verið hækkuð á þeim fjárhæðum sem
    lenda í tiltekinni skattprósentu. Þetta prósent kemur til af auknum
    hagvexti sem hefur ekki verið nægur og á þeim forsendum er þetta prósent
    ekki sett á núna.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>