<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T13:38:29" skst="GÞÞ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 13:41:02 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T13:38:29">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Auðvitað
    gæti einhver sagt að það væri ekki sanngjarnt að spyrja hv. þingmann en þó
    er það þannig að hv. þingmaður er einn af forystumönnum Viðreisnar og þau
    hljóta að ræða þessi mál. Ég get ekki ímyndað mér annað en að það hljóti
    að vera snúið að útskýra þetta fyrir fólki sem kaus flokkinn í þeirri góðu
    trú að þau myndu ekki hækka skatta. Þegar allt er saman tekið eru þetta 60
    milljarðar. Nú eru margar leiðir til að hækka skatta. Eitt er að hreyfa
    akkúrat við þessari tölu sem hv. þingmaður vísaði til og ná þá 3
    milljörðum inn í ríkissjóð. Það þýðir að fólk borgar 3 milljörðum meira í
    tekjuskatt en það ella hefði gert, eins og þegar samnýtingin var tekin af.
    Menn ganga sömuleiðis mjög hart fram í krónutölugjöldum, svo dæmi sé
    tekið.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Núverandi forsætisráðherra sagði á síðasta kjörtímabili að þegar
    ríkisstjórnir gerðu ekki nóg til að halda aftur af verðbólgu þyrfti
    Seðlabankinn að gera meira. Hv. þingmaður þekkir það að fjármálaráð kom
    með mjög alvarlegar athugasemdir við fjármálaáætlun sem ekkert var gert
    með. Ef hv. þingmaður vill bæta einhverju við til að skýra málið betur,
    hvað gerðist með Viðreisn og skattana, þá væri það gott. Ég spyr líka hv.
    þingmann: Hefur hann ekki neinar áhyggjur af því að við séum ekki að fara
    eftir ráðleggingum færustu manna þegar kemur að fjárlögum og
    fjármálaáætlun? Það er alveg sama hvernig menn snúa því, það er ekki einu
    sinni tilgreint í nefndaráliti meiri hluta fjárlaganefndar, fjármálaáætlun
    var ekki einu sinni uppreiknuð. Það er komið í ljós að það sem
    fjármálaráðherra sagði reyndist rétt. Þetta voru allt of bjartsýnar
    forsendur. En sömuleiðis er vísað til þess að breytingar á lögum sem
    ríkisstjórnin stóð fyrir ýti undir ósjálfbærni. Ég vil sömuleiðis nefna að
    þetta muni ekki slá á verðbólguvæntingar þegar menn ganga áfram með
    fjármálaáætlun sem felur í sér eins mikla skuldahækkun og raun ber vitni.
    Er þetta ekkert áhyggjuefni fyrir hv. þingmann?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>