<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T13:41:08" skst="GrímG" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 13:43:28 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T13:41:08">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrir hans
    síðara andsvar. Ég ætla fyrst að svara þessu eins og ég get varðandi
    skattana, eins og mér finnst þetta persónulega. Mér finnst það
    raunverulega afleitt, ef ég á að segja alveg eins og er, að það þurfi að
    fara í það að hækka skatta. En ég var að reyna að benda á það áðan að
    þegar það þarf að loka gati sem hefur myndast vegna þess að það er
    uppsafnaður halli, töluvert há fjárhæð, þá getur þurft að fara aðra leið
    en maður ætlaði að fara áður. Það er afleitt að þurfa að hækka skatta en
    stundum þarf að gera afleita hluti og þá þarf að velja þá skatta sem eru
    minnst erfiðir fyrir fólk.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég komst ekki yfir það áðan sem ég vildi segja varðandi
    ferðaþjónustuna. Það sem verið er að tala um eru baðlónin. Baðlónin hafa
    verið með 11% virðisaukaskatt á sína þjónustu og hann verður nú hækkaður í
    24% eins og á við um svo margt annað sem ferðamenn nýta í sinni dvöl hér
    og líka auðvitað Íslendingar. Það er þannig bara komið að því að baðlón
    sem eru gríðarlega mikil fjárfesting — ég tékkaði á því áðan að í einu
    svona baðlóni þá er lægsta gjaldið einhverjar 7.690 kr. Auðvitað er það
    töluverð hækkun sem kemur á þetta gjald en það er spurning hvernig það
    leggst á þá sem veita þjónustuna og á þá sem nýta hana. Það er að
    einhverju leyti hægt að horfa til þess hvort skatturinn leggist á með
    jöfnum hætti eða hvort hann verður einfaldlega settur alveg á gjaldið. —
    Ég biðst velvirðingar á því að komast ekki lengra með
    spurningarnar.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>