<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T13:43:41" skst="HHL" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 13:54:24 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T13:43:41">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Virðulegi forseti. Með ákveðinni einföldun má
    segja að stjórn efnahagsmála sé eins og að smala fé af fjalli. Aðstæður í
    smölun, líkt og í raunheimum efnahagsmála, eiga það nefnilega til að
    breytast. Á fjalli getur skyggni breyst hratt með veðrum og vindum og oft
    þvert á spár. En einmitt þá skipta viðbrögðin við aðstæðum miklu máli. Þá
    reynir á leiðtogann, sem er fjallkóngurinn eða -drottningin, að vinna með
    samsmölum að því að ákveða aðgerðir og forgangsröðun án þess að missa
    sjónar á markmiðinu. Markmiðið í smölun er ekki bara að komast sem hraðast
    niður af fjallinu. Nei, markmiðið er að fé komi af fjalli og fólk
    með.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Hér á Alþingi í dag erum við að ræða lykilmál, við erum að ræða
    allt annars konar fé; fjárlög ríkisins. Í þeim er einmitt áherslan of
    mikil á það að komast sem allra hraðast niður af fjallinu, komast sem
    allra hraðast í núllið án þess að hugsa endilega um það hver áhrifin eru á
    verðmætasköpun, hver áhrifin eru á fólk þannig að við séum að passa upp á
    það að allt þetta skili sér með. Ég hef áhyggjur af því sömuleiðis hvaða
    skilaboð við erum að senda sem snúa að vöxtum og verðbólguþróun í
    landinu.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Heilt yfir hef ég áhyggjur af því að það sé ekki búið að hugsa á
    dýptina, innleiðinguna til enda og kannski mest af því að við séum ekki
    búin að skilgreina nægilega vel í þessu ferli öllu saman hvernig eigi að
    meta og mæla árangur. Það er t.d. erfitt að sjá hvernig fjárfesting í
    menntun eigi að leiða af sér umbætur. Það er erfitt að sjá þegar við
    horfum á stöðu framhaldsskólanna hver mælanleg markmið árangurs eiga að
    vera meðan það er ekki verið að auka fjárfestingu og setja mælanleg
    markmið sem við ætlum að ná saman. Þá er erfitt að átta sig á því hvernig
    fé á að nýtast. Og kannski heilt yfir er það sem ég hef mestar áhyggjur af
    að það er óljóst varðandi þá fjárfestingu sem við erum að setja fram í
    gegnum þessi fjárlög hvaða mælanlega árangri við ætlum að ná fram. Ég held
    að þegar við erum á svona erfiðum tímum, við erum að reyna að skera niður,
    þá sé það þessi mælanleiki sem skipti öllu máli varðandi verkefnin
    sjálf.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég vil taka fram að í fjárlögunum er auðvitað markmiðið um að sýna
    aðhald mikilvægt. Það er misjafn sauður í mörgu fé, ef svo má segja, en
    það er auðvitað margt sem er líka jákvætt. Mig langar til að byrja á því
    að draga fram nokkur slík atriði. Mér finnst jákvætt að sjá að það hefur
    verið brugðist við þeim ábendingum sem við komum með áður um að það þurfi
    að fjárfesta meira í íslenskukennslu fyrir þá sem hafa flutt hingað til
    lands. Ef við gerum það ekki þá erum við að grafa undan samfélaginu okkar.
    Við erum að skapa átök, við erum að velta kostnaði út í menntakerfið og
    víðar sem skapar álag. Það er jákvætt að við séum að horfa á meiri
    fjárfestingar í þessu þó að ég myndi gjarnan vilja að við værum með
    mælanleg markmið þannig að fjárfestingin væri að skila sér í ákveðna
    kvarða og við gætum mælt hvort fjárfestingin sé að standa undir þeim
    væntingum sem við setjum fram. Það er líka jákvætt ef við horfum t.d. á
    málefni aldraðra, málefni heilsugæslu og sjúkraþjálfunar, að sjá að þar er
    verið að bæta í fjárfestingu og það eru allt dæmi um málaflokka sem
    verulega þurfa á slíkri fjárfestingu að halda. Það má hrósa fyrir það að
    verið sé að ýta undir fjárfestingu í þeim sérstaklega.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Dæmi um forgangsröðun sem ég er hugsi yfir eru mörg. Það er
    ýmislegt sem er óskýrt og ég vonast til að umræðan um þetta mál muni varpa
    frekara ljósi á. Í fyrsta lagi hef ég áhyggjur af því í samhengi við
    samgöngumálin hvernig nýtt innviðafélag verði fjármagnað. Mér finnst vera
    óljóst hvernig Fljótagöng t.d. eru fjármögnuð í þessu mikilvæga plaggi.
    Það skiptir máli fyrir þingheim, sem á að vera að ræða
    grundvallarupplýsingar, að þær upplýsingar liggi allar saman fyrir svo að
    við getum tekið afstöðu til þess hvort fjárlög séu raunhæf eða ekki. Sama
    á við í raun og veru um kílómetragjaldið. Það vantar alla greiningu fyrir
    þingmenn á því hvaða áhrif það raunverulega hefur á ólíka íbúa, hvað það
    þýðir fyrir íbúa landsbyggðarinnar og hvað það þýðir fyrir atvinnulífið.
    Við þurfum að sjá betri upplýsingar til að það sé hægt að meta þessar
    álögur sem vissulega eru miklar og auknar og maður getur ímyndað sér að
    þær komi verst niður á landsbyggðinni.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Í orkumálunum verð ég að segja að í samhengi við yfirlýsingar um
    áherslu á orkuskipti þá virðist vera sem svo að hér sé um að ræða blauta
    tusku framan í þá vegferð. Við erum að sjá svo mikla lækkun á Orkusjóði og
    ég velti fyrir mér þegar við horfum á orkusjálfstæði Íslands, horfum á
    uppbyggingu innviða á landsbyggðinni í samhengi við hleðslustöðvar, í
    samhengi líka við rafvæðingu hafna og aðra mikilvæga orkuinnviði, hvernig
    áherslur ríkisstjórnarinnar og lögbundin markmið sem við höfum þegar
    gengist undir, ríma við þá mynd sem virðist vera sett fram hér.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Á sviði menntamála er margt sem ég er hugsi yfir. Heilt yfir er ég
    hugsi yfir hvernig við erum að fjárfesta í þeim málaflokki almennt. Ég er
    hugsi yfir því hvort við séum að fjárfesta kannski í tannhjólum sem þarf
    að endurnýja eða slípa til miðað við áherslur og niðurstöður
    PISA-könnunarinnar. Hér þarf að gera róttækari breytingar og það þarf að
    fjárfesta í samhengi við þær. Ég nefndi líka áðan framhaldsskólana sem eru
    annað dæmi um að framtíðarverðmætasköpun Íslands sé ógnað ef við
    fjárfestum ekki í málaflokknum sem framhaldsskólar eru. Það er eitthvað
    sem ég hef verulegar áhyggjur af. Mér hefur einnig borist það til eyrna að
    það sé verið að skera niður í fjárfestingu í innleiðingu farsældarinnar
    sem er mjög mikilvægt að sé kláruð. Þetta eru dæmi um verkefni sem mér
    finnst vanta og ég vona að samtal hér við ráðherra síðar í dag varpi betra
    ljósi á.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þá komum við að fjórða atriðinu sem mig langar til að draga fram
    og það er nýsköpun. Nýsköpun er grundvöllur verðmætasköpunar, grundvöllur
    þess að við séum að byggja fleiri stoðir undir okkar hagkerfi. Það er
    erfitt að sjá að við séum að sækja fram í því að skapa tækifæri fyrir
    íslenskt samfélag í þessum fjárlögum. Svo virðist sem það sé niðurskurður
    í þessum málaflokki á tímum þar sem við einmitt, ef við ætlum að byggja
    undir hallalaus fjárlög til framtíðar, þurfum að gera miklu betur. Við
    þurfum að hugsa þetta langt fram yfir einstaka kjörtímabil. Hér er einmitt
    dæmi um það sem við höfum frekar verið að fjárfesta í nýsköpun þó að það
    kosti okkur jafnvel einhvern ákveðinn halla núna af því að við erum að
    byggja undir fleiri stoðir hagkerfisins.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Um landbúnað langar mig að segja að ég hef almennt fagnað þeirri
    heildarsamstöðu sem mér finnst birtast þegar kemur að áherslunni á
    nýliðun. En ég verð að segja um leið að mér finnst áherslan ekki birtast í
    fjárfestingu. Það skortir á hvernig þessi áhersla á nýliðun í landbúnaði
    birtist með skýrum hætti í fjárfestingu. Það eru ótrúleg tækifæri í
    matvælaframleiðslu almennt en það þarf kjark ef við ætlum að ná þeim
    markmiðum og þau þurfa að birtast í þessu lykilplaggi sem varðar framkvæmd
    verkefna. Þau þurfa að birtast í fjárlögum. Einnig langar mig til að fá
    skýrari svör frá utanríkisráðherra um hvort hægt sé að nota hluta þeirrar
    aukningar í fjárfestingu í varnarmálum, í viðnámsþoli og öðru, í
    innviðafjárfestingu í landbúnaði.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég get nefnt fleiri þætti og mun koma til með að ræða áfram um
    ferðaþjónustuna þar sem mér finnst við þurfa skýrari stefnu <ns:bjalla/>
    um það hver þáttur greinarinnar á almennt að vera í hagkerfinu. Það eru
    miklar álögur sem birtast á ferðaþjónustuna sem við þurfum að ræða í þessu
    framtíðarsamhengi. Það eru heilbrigðismálin o.s.frv. Ég hlakka til
    samtalsins hér í dag. <ns:bjalla/> Ég vona að það varpi ljósi á suma af
    þessum þáttum því að það er mikið undir fyrir íslenskt samfélag.</ns:mgr>

    <ns:mgr><ns:forseti skst="HildS"> Forseti beinir því til hv. þingmanna að
    virða ræðutímann.</ns:forseti></ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>