<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T13:54:39" skst="RagnaS" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 13:56:46 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T13:54:39">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Hæstv. forseti. Mig langar að þakka hv. þm. Höllu Hrund Logadóttur
    fyrir góða ræðu. Ég verð að segja að ég kann að meta þá nálgun að draga
    fram það jákvæða auk þess sem þingmaðurinn er hugsi yfir. Ég held að það
    sé góður bragur á því hér í þessum þingsal að geta rætt málin málefnalega
    og kosti og galla. Mig langar að spyrja þingmanninn hvað henni finnst um
    þetta markmið um hallalaus fjárlög. Við höfum auðvitað verið að ræða hér,
    og það var líka rætt undir umræðu um stefnuræðu forsætisráðherra í gær, að
    það er ekki auðvelt að stefna að hallalausum fjárlögum. Þetta er í fyrsta
    sinn sem það gerist í næstum því tíu ár, síðan 2019. Það skiptir auðvitað
    máli að við hér á Alþingi tryggjum það að við eigum fyrir því sem við
    eyðum. Ég veit að hv. þingmaður var auðvitað ekki sitjandi á Alþingi í tíð
    síðustu ríkisstjórnar en það bar á því að það var eytt um efni fram. Ég
    verð að segja að ég tek undir með hv. þingmanni varðandi áhersluna á
    heilbrigðismál. Ég tel það mikilvægt. Ég tel mikilvægt að
    framlínustarfsmönnum sé hlíft þegar kemur að aðhaldskröfu í frumvarpi til
    fjárlaga. Það hafa ýmiss konar yfirlýsingar verið gefnar út á síðastliðnum
    árum og áratug varðandi heilbrigðismál. Til að mynda var ég mjög ánægð með
    kjarasamninga lækna en svo brá mér í brún þegar ekki var til fjármagn
    fyrir þeim. Það var mikið um ófjármögnuð loforð. Mig langar að spyrja hver
    afstaða hv. þingmanns er gagnvart hallalausum fjárlögum.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>