<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T13:56:55" skst="HHL" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 13:59:12 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T13:56:55">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni fyrir
    góða spurningu sem er auðvitað lykilspurningin: Auðvitað skiptir máli að
    við séum að sýna aðhald. Auðvitað hefur það ekki verið gott að það hafa
    verið að safnast upp skuldir. En ég vil líka, til að gæta sanngirni, af
    því ég vann áður sem orkumálastjóri á síðasta kjörtímabili fyrri
    ríkisstjórnar, að það voru auðvitað áföll eins og t.d. Grindavík, Covid og
    annað sem auðvitað gerðu það að verkum að það var álag í forgangsröðun.
    Það sem ég vil draga fram hér, hallalaus fjárlög og það að sýna aga og
    reka ekki ríkið á yfirdrætti, eins og hefur verið fjallað hér um, er
    mikilvægt en við verðum að passa að þegar við erum á leiðinni að því
    markmiði að við séum ekki að kippa undan tækifærum til verðmætasköpunar,
    við séum ekki að hætta að fjárfesta í nýsköpun sem er í raun og veru
    eitthvað sem skapar okkur tækifæri inn í framtíðina. Við þurfum að passa
    að við séum í raun og veru ekki að kippa undan okkur fótunum samtímis.
    Þetta er spurning um hraða, þetta er spurning um forgangsröðun og þetta er
    líka spurning um heildaryfirsýn. Það er það sem mér birtist t.d. hér í
    þessu samtali hér áðan varðandi Fljótagöng og samgönguáætlun. Það er mjög
    óljóst í fjárlögum hvort það sé heilt yfir verið að fjármagna þau göng í
    þessum fjárlögum. Ef það á síðan að koma með fjáraukalög eða bandorm þá er
    heildarmyndin ekki að birtast hér og þá ætti frekar að tala um það hreint
    út núna heldur en að gera ráð fyrir því í einhverjum viðbótarfjárlögum.
    Þannig að ég vil bara segja: Við þurfum að hafa þessa heildarmynd skýra
    núna. Við erum öll sammála um að það eigi að ná aðhaldi en fyrir mér er
    þetta spurning um að passa upp á, alveg eins og við þurfum að passa upp á
    heilbrigðisgreinar, að verðmætasköpun verði ekki undir. Við eigum svo
    mikið undir því að hún gangi vel, ekki bara á þessu kjörtímabili heldur
    inn í framtíðina.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>