<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T13:59:18" skst="RagnaS" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 14:01:31 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T13:59:18">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið við andsvarinu
    og tek auðvitað undir það að verðmætasköpunin skiptir gríðarlega miklu
    máli. Hér hefur verið rætt um gríðarlega innviðaskuld sem samkvæmt skýrslu
    Samtaka iðnaðarins frá 2025 nemur 680 milljörðum kr. bara í vegakerfinu.
    Auðvitað skiptir mjög miklu máli að hafa í huga að þetta eru oft upphæðir
    sem mannsheilinn á bara erfitt með að ná utan um og ég tala nú ekki um
    þessa 866 milljarða í uppsafnaðan halla ríkissjóðs á síðustu tveimur
    kjörtímabilum. Þetta er auðvitað líka hluti af heildarmyndinni og þetta
    skiptir gríðarlega miklu máli. Ef þessi uppsafnaði halli hefði ekki verið
    þessir 866 milljarðar þá hefði verið hægt að borga upp þessa gríðarlegu
    innviðaskuld og reka sjúkrahúsþjónustu á Íslandi í heilt ár. Auðvitað
    skiptir þessi heildarmynd máli. Ég tek undir það. Á sama tíma tel ég mjög
    mikilvægt að fara yfir kerfið í heild, endurskoða þær styrkveitingar sem
    hafa átt sér stað t.d. til nýsköpunar og kanna hvort þær séu raunverulega
    að renna til þeirra fyrirtækja sem skila árangri og þurfa á styrkjum og
    stuðningi að halda. Þetta er auðvitað líka mikilvægt; við verðum sífellt
    að endurskoða kerfið okkar.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Mig langaði þó að nefna hér varðandi kílómetragjaldið: Það lágu
    auðvitað fyrir greiningar áður en að keyra kílómetragjaldið var sett á sem
    sýndu að miðað við aðra hópa var það kannski helst landsbyggðin sem kom
    betur út hvað varðar kílómetragjaldið og álagningar, bara svo það sé
    skýrt. Svo er ríkisstjórnin að leggja á helmingi minni kílómetragjöld hvað
    varðar upphæðina heldur en áætlað var af fyrri ríkisstjórn.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>