<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T14:01:46" skst="HHL" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 14:03:43 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T14:01:46">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið og
    spurninguna sömuleiðis sem mér fannst vera frekar almenns eðlis. Ég verð
    bara að segja þetta: Ég sem stjórnarandstöðuþingmaður er að reyna að ná
    utan um þessa stóru mynd sem birtist í þessu fjárlagafrumvarpi. Mér finnst
    ekki vera nægilega skýrt hvað við erum að setja mikið í ólíka þætti, þ.e.
    hvar niðurskurðurinn mun raunverulega koma niður. Ég hef líka áhyggjur af
    því að þessi mælanleiki á markmiðum, eins og ég nefndi með
    íslenskukennsluna áðan, sé bara einfaldlega ekki nógu skýr um hvernig við
    ætlum að raunverulega að meta árangur. Svo þegar þú ert að tala um að
    velta við hverjum steini og hafa hluti áþreifanlega: Mig langar til að
    halda aðeins áfram með umræðuna um heilbrigðismálin. Mig langar til að sjá
    miklu skýrari markmið sem varða t.d. starfsemi lækna á landsbyggðinni. Mig
    langar til að við séum að ná á sama stað, að það sé t.d. læknisþjónusta á
    Kirkjubæjarklaustri og almennileg læknisþjónusta sem er núna í vörn í Vík,
    að þetta sé bara skýrt og það sé fjárfesting í fjárlögum akkúrat fyrir það
    og við getum mælt árangur, náðist að manna stöðu sem var fjármögnuð eða
    ekki. Þetta er lítið dæmi en það kannski kristallar þessa heildarhugsun
    sem mér finnst kannski skorta í frumvarpinu hvað varðar dýptina þannig að
    þingheimur átti sig raunverulega á því hvað þetta þýði fyrir ólík
    málefnasvið. Það virðist svo sannarlega vera sem svo að niðurskurður bitni
    á ólíkum þáttum víða.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>