<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T14:04:05" skst="NTF" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 14:14:33 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T14:04:05">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Forseti. Við ræðum hér fjármálafrumvarp fyrir árið 2027 sem er um
    margt áhugavert og mig langar að hlaupa í 1. umræðu og fyrstu ræðu yfir
    það helsta. Það er meginstefna þessarar ríkisstjórnar að það verði
    hallalaus fjárlög á næsta ári. Meginmarkmið þessarar ríkisstjórnar hefur
    verið, frá því að hún var kosin, að lækka hér vexti og verðbólgu í
    landinu. Það er sá hluti sem hefur gengið mjög erfiðlega og við höfum séð
    stýrivexti hækka ítrekað á undanförnum mánuðum, um samtals 75 punkta í
    þremur 25 punkta hækkunum. Heimanmundurinn var nefnilega svolítið góður,
    það sem kom út úr fjárlögunum sem voru samþykkt hérna í nóvember 2024
    fyrir árið 2025: Verðbólga byrjaði að lækka mikið og vaxtastigið um
    haustið 2024 og hélt áfram að lækka inn í fyrri hluta árs 2025. En síðan
    þá hefur hallað töluvert undan fæti, síðastliðið ár, í sambandi við þetta.
    Við erum að tala um að það er reiknað með að afgangurinn verði tæpir 5
    milljarðar, 4,7 milljarðar, í 1.700 milljarða fjárlögum eða um 0,1% af
    landsframleiðslu, eða sirka 0,3% af fjárlögunum í afgang.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Til að ná þessari niðurstöðu eru boðaðar aðgerðir upp á tæplega
    66,6 milljarða, sérstök tala sem kemur þarna upp. 44 milljarðar felast í
    hagræðingu og útgjaldabreytingum en um 22,6 milljarðar eiga að koma frá
    auknum tekjum og breytingum á tekjuáætlun. Það er áhugavert að skoða hvar
    aðhaldið er að koma fram, sem það gerir fyrst og fremst og að stærstu
    leyti í fjárfestingarhlutanum, eða 25,7 milljarðar af 44 milljörðum. Síðan
    er reksturinn tæpir 18,5 milljarðar í hagræðingunni. Inni í þessari tölu
    er t.d. Landspítalinn þar sem er gert ráð fyrir að draga úr fjármagni til
    framkvæmda um 8,9 milljarða, þannig að þetta svokallaða aðhald er fyrst og
    fremst bara það að verið er að draga úr fjárveitingum inn í framkvæmdir
    eða fresta framkvæmdum. Það er stór hluti af þessu. Síðan erum við að tala
    um þessa 22,6 milljarða sem eiga að koma frá auknum tekjum og breytingu á
    tekjuáætlun þar sem koma til nýir skattar eins og bankaskattur upp á 6
    milljarða sem gerir ekkert annað með tíð og tíma en að hækka vaxtastigið,
    hækka vexti á heimilin og atvinnulífið, skilar sér þangað. Það á að bæta í
    gjaldtöku í ferðaþjónustu um 5 milljarða. Kílómetragjaldið á að hækka um 4
    milljarða. Baðlón eiga að fara í almennt virðisaukaskattsþrep, það eru 4
    milljarðar við að hækka úr 11% í 24%. Lækkun endurgreiðslu virðisauka
    vegna íbúðarhúsnæðis er 3,6 milljarðar, þegar hlutfallið fer úr 35% niður
    í 20% af endurgreiðslum vegna framkvæmda á byggingarstað.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Mig langaði að koma sérstaklega inn á það sem kemur beint á
    íslenska ferðaþjónustu. Það virðist vera að ferðaþjónustan eigi svolítið
    að bera höggið, nýja skatta og gjöld, í þessu frumvarpi og það má tala um
    að þar sé um enn einn landsbyggðarskattinn að ræða. Flest baðlónin eru með
    starfsemi úti á landi og gegna stóru og mikilvægu hlutverki sem
    ferðamannaseglar í ferðaþjónustu. Í Norðausturkjördæmi er öflug starfsemi,
    fjögur baðlón: Skógarböðin við Akureyri, Jarðböðin við Mývatn, sjóböðin á
    Húsavík og Vök í Múlaþingi, rétt við Egilsstaði. Áhrifin þar verða
    sjálfsagt langmest á sjóböðin á Húsavík og Vök við Egilsstaði þar sem
    vetrarferðaþjónustan er mjög takmörkuð. Þar hafa viðbrögðin verið að menn
    fara raunverulega að skoða lokanir á baðlónunum fyrir veturinn, sem er
    auðvitað mjög alvarlegt fyrir alla sem eru að byggja upp
    heilsársferðaþjónustu á landsbyggðinni. Þetta er mjög slæm þróun fyrir þá,
    ef þannig fer, og þarna reiknum við með að mesta höggið verði. Það er líka
    áhugavert að sjá að það virðist ekki vera nein greining í þessu frumvarpi
    á því hvaða áhrif þetta mun hafa á þessa starfsemi. Það er mikilvægt að
    það liggi fyrir fullnægjandi greining á áhrifunum áður en við greiðum hér
    atkvæði, væntanlega í nóvember eða desember, um þetta fjárlagafrumvarp, að
    það sé komin greining á því hvaða áhrif þetta hefur á landsbyggðirnar.
    Auðvitað getur þessi sama skattprósenta haft gjörólík áhrif eftir
    staðsetningu fyrirtækja, árstíðasveiflum og stærð markaðar. Fyrirtæki á
    landsbyggðinni hafa ekki sama aðgang að stórum heimamarkaði og fyrirtæki á
    höfuðborgarsvæðinu. Þau eru háðari ferðamönnum og árstíðasveiflum og hafa
    oft minni möguleika á að dreifa auknum kostnaði.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Síðan er það kílómetragjaldið, sem kannski koma frekari greiningar
    á. Það er verið að hækka það um 15,9% á milli ára. Frumvarpið miðar við
    5,2% hækkun á krónutölugjöldum og svo eru 10% þar fyrir utan í hækkun á
    kílómetragjaldinu. Þetta leiðir til þess að kílómetragjaldið hækkar um 4
    milljarða umfram almenna verðlagsuppfærslu. Þetta kemur sérstaklega illa
    við hópferðafyrirtæki, bílaleigur og aðra aðila sem flytja ferðamenn um
    landið og þess vegna er hér raunverulega um landsbyggðarskatt að
    ræða.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Það er líka áhugavert að sjá að í þessu frumvarpi er dregið
    töluvert úr fjárfestingum, nýjum fjárheimildum til fjárfestinga, eins og
    ég kom inn á áðan, frú forseti. Heildarfjárheimildir til fjárfestinga og
    fjármagnstilfærslan verða 121,6 milljarðar kr. árið 2027. Þær lækka um
    23,7 milljarða á milli ára eða um 16,3%.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Framlög til samgönguframkvæmda verða 37,9 milljarðar og lækka um
    2,7 milljarða. Fjárveiting til Vegagerðarinnar lækkar úr 34,7 milljörðum í
    32,9 milljarða og framlög til Betri samgangna úr 6,9 milljörðum í 5,1
    milljarða. Vissulega skýrist hluti lækkunarinnar af niðurfellingu
    tímabundinna framlaga og nýtingu uppsafnaðra fjárheimilda en það breytir
    þó ekki þeirri staðreynd að nýtt fjármagn til fjárfestinga verður
    minna.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Eins og ég kom inn á lækka fjárheimildir til nýja Landspítalans um
    8,9 milljarða.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Mig langaði síðan rétt að minnast á krónugjöldin og áhyggjur af
    þeim varðandi skemmtiferðaskipin og áhrif þeirra á leiðangursskipin í
    siglingum í kringum landið. Það er ljóst að það er skelfileg þróun
    varðandi leiðangursskipin og minni hafnirnar um allt land. Það er að
    þróast mjög illa og ekki fyrirséð að það batni á næstu árum. Þar er allt á
    niðurleið eins og þetta hefur verið að þróast undanfarin misseri. Þessi
    árlega hækkun innviðagjaldsins verður ekki til þess að fjölga skipakomum
    til þessara smærri staða og hafna og það vantar fyrirsjáanleika. Það að
    hækka á milli ára um 5,2%, eins og þetta, á nákvæmlega sama tíma og
    skipafélögin og hagsmunaaðilar hafa verið að benda á að það verði að vera
    fyrirsjáanleiki til einhvers tíma, til næstu ára, hverju sinni. Þannig að
    ef það á að fara í þessar hækkanir þarf kannski að breyta svolítið
    fyrirkomulaginu, hvernig það er gert, til að bæta
    fyrirsjáanleika.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Mig langar síðan að ræða áföll. Á bls. 94 í frumvarpinu er
    einungis minnst á heimsfaraldurinn varðandi áföll undanfarinna ára. Við
    skulum ekki gleyma WOW-áfallinu 2019. Við skulum ekki gleyma Covid
    2020–2021. Við skulum ekki gleyma innrás Rússa í Úkraínu í febrúar 2022 og
    við skulum ekki gleyma jarðhræringum í Grindavík. Það hefur verið gerð
    skýrsla þar sem beini kostnaðurinn er 350 milljarðar og svo má reikna
    ríkissjóði annað eins í slæmri afkomu. Þetta er eitthvað sem við þurfum að
    ræða af miklu meiri dýpt. Það er stundum eins og margir séu búnir að
    gleyma hvað við höfum verið að eiga við síðustu misseri og á síðustu
    árum.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>