<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T14:14:39" skst="ArnaJ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 14:16:45 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T14:14:39">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég verð að byrja á að þakka þingmanninum fyrir
    ræðuna. Ég veit að við erum sammála um margt. Við verðum að ná jafnvægi í
    ríkisrekstri og ég tel að við deilum því markmiði að ná hallalausum
    fjárlögum, sem við verðum að ná. Ég heyri að hann hefur áhyggjur af þeim
    aðgerðum sem eru kynntar í frumvarpinu og þá sérstaklega það sem birtist í
    bandorminum. Það er hækkunin á kílómetragjaldinu sem er í raun og veru
    lækkun frá áætlun fyrri ríkisstjórnar, hún var hærri en við lækkuðum þetta
    og við erum enn að stefna að 1,7% af vergri landsframleiðslu, ég vil nefna
    það. Svo talar hann um að innviðagjöldin ættu ekki að taka
    krónutöluhækkunum. Þá spyr ég um sanngirni gagnvart öðrum þeim gjöldum sem
    ríkið er að setja á. Af hverju ætti innviðagjald að vera undanþegið? Hver
    er sanngirnin í því? Ætti ekki að gilda það sama fyrir öll gjöld ríkisins?
    Mig langar að velta því upp við þingmanninn.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Hann nefnir líka baðlónin sem eru fjölmörg á landsbyggðinni en
    auðvitað líka á höfuðborgarsvæðinu. Ég skil vel að hann hafi áhyggjur af
    atvinnustarfsemi í sínu kjördæmi, það skil ég mætavel. Það sem ég er líka
    að velta fyrir mér, af því að ég nefni sanngirnina, er að þegar ég fer í
    bíó með barnið mitt þá borga ég 24% virðisaukaskatt af bíómiðanum fyrir
    mig og barnið. Af hverju ætti ég að borga 11% virðisaukaskatt fyrir að
    fara með sama barn í baðlón? Hver er sanngirnin í því? Ég velti því upp
    við þingmanninn. Svo vil ég bara spyrja: Er hann ekki sammála mér í því að
    það sé mikilvægt fyrir heimili þessa lands og fyrirtæki að ná hallalausum
    fjárlögum? Ef við viljum ekki fara þessa blönduðu leið, hvaða leið eigum
    við þá að fara?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>