<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T14:16:51" skst="NTF" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 14:19:09 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T14:16:51">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Þegar ég er að tala um fyrirsjáanleika þá er ég
    einmitt að tala um að hækkanirnar komi ekki bara tíu dögum fyrir áramót.
    Það sé fyrirsjáanleiki og ef þú ert að hækka þá verði það boðað með a.m.k.
    árs fyrirvara, þá í fjárlögum 2028, myndum við gera núna, þá kæmi
    hækkunin. Það er fyrirsjáanleiki. Það vantar og það gerðist hér í fyrra,
    sem var mikið slys, með vörugjöldin á bílana. Það var bara ákveðið með
    nokkurra daga fyrirvara. Við getum ekki verið með fyrirsjáanleika sem
    byggist á þessu. Svo var þetta rosalega verðbólguskot tengt því í fyrra,
    0,6%, inn í verðbólguna og er hluti af því að það hefur gengið alveg
    hræðilega illa að ná niður verðbólgu. Það er mikilvægt.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Baðlónin — þá kem ég bara að því sama, fyrirsjáanleika. Er þá ekki
    réttast að boða þetta eftir tvö, þrjú ár með einhverjum fyrirsjáanleika
    þannig að aðilar sem eru að pæla í að fara í fjárfestingar núna, sem eru
    þó nokkrir í landinu, viti að hverju þeir ganga? Þetta er það sem við erum
    alltaf að kalla eftir og sá sem hér stendur hefur kallað eftir í bráðum
    tíu ár hér í þingsal; það er fyrirsjáanleiki fyrir atvinnulífið.
    Fyrirsjáanleiki ætti náttúrlega að vera líka bara fyrir alla.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Kílómetragjaldið og hvernig var staðið að því — það var ekki
    klárað 2024. Það var ekki vilji fyrir því haustið 2024 að klára það með
    þeim hætti sem það var sett fram þá. Það eru miklar efasemdir um það enn
    þá og hvernig hefur verið staðið að málum. Þannig að þó að fyrri
    ríkisstjórn hafi verið með þær hugmyndir og lagt þær fyrir þá var ekki
    endilega meiri hluti fyrir því í þinginu að fara nákvæmlega þannig í
    málið. Verðlagsforsendurnar síðan í þessu máli hérna, ég ætla aðeins að
    koma inn á það, eru náttúrlega með hreinum ólíkindum. Það er verið að miða
    við 5,2% í grunninn í þessu fjárlagafrumvarpi, verðlagsforsendur og hækkun
    krónutölugjalda um 5,2%. En verðbólgumarkmið Seðlabankans er 2,5%. Hvað
    eigum við að gera með sveitarfélögin? Hvernig eiga allir að bregðast við
    þegar ríkið leggur línuna svona? Stóra málið hjá þessari ríkisstjórn eru
    vextir og vaxtastig, að ná niður verðbólgu og vöxtum. Þetta er, held ég,
    eitt það alvarlegasta í þessu öllu saman.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>