<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T14:19:14" skst="ArnaJ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 14:21:18 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T14:19:14">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Njáli Trausta
    Friðbertssyni fyrir andsvarið. Mig langar að byrja á að nefna með
    kílómetragjaldið að þó að það hafi ekki heitið kílómetragjald í áætlunum
    fyrri stjórnvalda þá átti að taka 1,7% af vergri landsframleiðslu af
    samgöngum í samgöngurnar. Svo var þetta bara óútfært af því að fyrri
    ríkisstjórn féll frá því að leggja kílómetragjald á með þeim hætti sem
    boðað var, en engu að síður var gert ráð fyrir þessari tekjuöflun. Þó svo
    að útfærslan hafi stoppað í þinginu þá var gert ráð fyrir þessari
    tekjuöflun þannig að það er ekki hægt að skýla sér á bak við þennan
    málflutning sem hv. þingmaður fór yfir áðan. Ég vil bara nefna það. Og við
    erum að lækka miðað við það sem var gert ráð fyrir, mér þykir mikilvægt að
    halda því til haga. Fyrir mér varðandi kílómetragjaldið — mörgum þykir
    óþolandi að það skuli hækka um 1 kr., ég skil það alveg, það er óþolandi.
    En við ætlum að láta þetta standa undir vegakerfinu og þegar við erum með
    kerfi sem er þannig í grunninn að þeir borga sem nota þá verðum við að
    fara þessa leið. Veit hann um einhverja aðra og sanngjarnari leið til að
    ná í tekjur af samgöngum? Það væri gott að heyra það hér ef þetta er ekki
    leiðin. Ég hef alveg heyrt að það eigi að taka gjald af nýjum
    vegaframkvæmdum og við erum að gera það líka. En miðað við vöxtinn í
    innviðauppbyggingu þá verðum við auðvitað að geta fjármagnað þetta. Ég
    skil það eftir eftir hjá þingmanninum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Mig langar líka að hafna þessari söguskýringu að þessar
    gjaldahækkanir um áramótin hafi drifið áfram verðbólguna. Ég vil benda hv.
    þingmanni á að lesa minnisblað frá fjármálaráðuneytinu sem kynnt var
    þjóðhagsráði í síðustu viku og þar kemur skýrt fram: „Aukning verðbólgu er
    ekki drifin áfram af opinberum gjöldum. Flugfargjöld skýra helming
    aukningar frá áramótum.“ Þannig að ég hafna því að vörugjöldin hafi ýtt
    undir verðbólguna. Ég hvet þingmanninn til að lesa þetta góða minnisblað
    sem varpaði nýju ljósi, alla vega hvað mig varðar, á það hvernig
    verðbólgan hefur þróast.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>