<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T14:21:24" skst="NTF" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 14:23:32 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T14:21:24">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Það var nú þannig haustið 2024, það er kannski ágætt
    að halda því til haga í umræðunni, að kolefnisgjöldin voru hækkuð mun
    meira haustið 2024 til að ná upp í þau markmið sem voru þá. Þá ættum við
    alveg eins að skoða það núna hér, ef kílómetragjöldin eru málið, að lækka
    kolefnisgjöldin. Þau voru hækkuð um 4 milljarða á sínum tíma þegar það
    gafst ekki færi á eða það var ekki vilji til að klára kílómetragjaldið í
    fjárlögunum sem við samþykktum í nóvember 2024 fyrir árið 2025, bara til
    að halda söguskýringunni algerlega til haga.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Hver var hinn punkturinn sem þú vildir helst fara í?
    <ns:frammíkall/> Já, vörugjöldin. Þá vil ég bara benda á Seðlabankann,
    þegar þeir tilkynntu stýrivaxtahækkunina sem kom síðast, eina af þremur
    sem hafa komið í röð upp á 0,25%. Þar var nú tekið einmitt fram að opinber
    gjöld hefðu veruleg áhrif á verðbólguþrýstinginn sem væri uppi í þessu
    landi, það kom frá Seðlabankanum. Það hefur ekkert farið á milli mála
    hvernig Seðlabankinn hefur talað um þessi mál og verðbólguþrýstinginn á
    undanförnum misserum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Það er bara mikilvægt að það sé fyrirsjáanleiki. Ég held að við
    munum það alveg að um síðustu áramót þá kom fram að verðbólguþrýstingurinn
    í byrjun árs hefði komið að stórum hluta út frá vörugjöldunum. Það var
    reiknað með því í síðustu fjárlögum að þrýstingurinn af verðbólgu yrði
    0,1% upp, með vörugjöldunum, en samkvæmt gögnum sem komu síðar voru það
    0,6%. Það var miklu meiri hækkun heldur en var reiknað með þegar við
    ræddum þetta fyrir ári síðan. Það er bara mikilvægt að svona
    fyrirsjáanleiki sé til staðar í öllu sem við gerum.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>