<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T14:23:42" skst="ArnaJ" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 14:30:28 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T14:23:42">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Við erum hér að ræða fjárlög ársins 2027,
    fjárlög sem eru hallalaus en það hefur ekki gerst í áratug. Hallalaus
    fjárlög eru akkerið og festan sem við verðum að viðhafa við glímuna við
    vexti og verðbólgu. Sjálfbær ríkisfjármál auka trúverðugleika
    efnahagsstjórnarinnar, draga úr þörf ríkisins fyrir frekari lántökur og
    geta stuðlað að lægri verðbólguvæntingum og lægra vaxtastigi. Við getum
    ekki haldið áfram að reka ríkissjóð á yfirdrætti. Við verðum að vera með
    Seðlabankanum í liði og sýna aga og ábyrgð í ríkisfjármálum. Það er það
    mikilvægasta sem við getum gert fyrir heimili og fyrirtæki landsins.
    Ekkert okkar er ánægt með stýrivexti í 8% og verðbólgu upp á 5,6%. Saman
    verðum við að takast á við þetta. Það er reyndar margt sem bendir til þess
    að verðbólga gæti farið að hjaðna. Hægt hefur á launaskriði, raunverð á
    íbúðum hefur verið að lækka, það hefur dregið úr innflutningi fólks til
    landsins og vinnumarkaðurinn er að kólna. Ábyrgð í ríkisrekstri ætti að
    hjálpa til við að slá á verðbólguvæntingar, þannig að það eru merki um að
    verðbólgan gæti farið að lækka.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Uppsafnaður halli ríkissjóðs frá árinu 2019 er 866 milljarðar. Ég
    ætla að fá að endurtaka: 866 milljarðar. Það er yfirdrátturinn sem við
    þurfum að borga. Við verðum að snúa af þessari leið. Kostnaðurinn af
    þessum uppsafnaða halla er svakalegur. Vaxtagjöld ríkisins á næsta ári eru
    áætluð 168 milljarðar. Til að setja þessar háu tölur í samhengi svo fólk
    tengi við þær, alla vega er það þannig fyrir mig að þessar tölur eru svo
    háar að ég á erfitt með að setja þær í samhengi, þá væri hægt að byggja
    tíu þjóðarhallir bara fyrir vaxtagjöldin. Fyrir sömu fjárhæð væri hægt að
    fjármagna stórar samgönguframkvæmdir á borð við Sundabraut og Fljótagöng,
    byggja hjúkrunarheimili og eiga pening eftir. Jarðgangaáætlun stjórnvalda
    er metin á 161 milljarð. Vaxtagjaldaupphæðin er af þeirri stærðargráðu að
    hún er á við nýjan Landspítala. Það mun því mikið ávinnast með því að ná
    tökum á ríkisfjármálum og skila ríkissjóði réttum megin við núllið.
    Vaxtakostnaður ríkisins hefur aukist gríðarlega á fáum árum, nánar
    tiltekið um 109 milljarða frá árinu 2021 og fram á þetta ár. Þeir
    fjármunir sem fara í vexti geta ekki á sama tíma farið í
    heilbrigðisþjónustu, menntun, löggæslu, samgöngur eða uppbyggingu
    innviða.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Fjárlagafrumvarpið 2027 markar því mikilvæg tímamót. Við erum að
    fara úr halla yfir í plús. Það er gert ráð fyrir 5 milljarða kr. afgangi
    og þar með er ríkissjóður farinn að skila afgangi. 5 milljarðar leysa
    auðvitað ekki skuldavanda ríkisins á einu ári. Mikilvægið er fyrst og
    fremst í stefnubreytingunni; við sýnum ábyrgð og tökum á vandanum. Þetta
    verður ekki auðvelt en það sagði enginn að þetta yrði auðvelt. Þetta er
    hins vegar mikilvægt og eins og allt sem er erfitt verður það auðveldara
    þegar frá líður. Heimilin og fyrirtækin munu svo sannarlega uppskera þegar
    vextir og verðbólga fara að lækka. Það er verið að fara skynsamlega leið
    sem er blanda af hagræðingu og nýrri tekjuöflun. Aðhald og hagræðing eiga
    að skila 44 milljörðum kr. á næsta ári en nýjar tekjuráðstafanir um 22,6
    milljörðum. Fyrir hverja krónu sem er aflað með nýjum gjöldum fást 2 kr.
    með aðhaldi og hagræðingu. Þetta skiptir máli. Einfaldasta leiðin hefði
    verið að sækja beint í vasa skattgreiðenda en sú leið er ekki farin.
    Hagræðingin felur í sér endurskipulagningu verkefna, að nýta tæknina
    betur, samræma innkaup, einfalda stjórnsýslu, spyrja stöðugt hvernig við
    getum veitt sömu þjónustu fyrir minna fé og reyna að sameina
    stofnanir.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Nýju tekjuráðstafanirnar fela í sér að leita í geira sem geta
    borið þyngri byrðar. Þar fer mest fyrir bankaskattinum en eins og sjá má á
    afkomutölum bankanna er nóg til þar. Hagnaður bankanna í fyrra var 94
    milljarðar og ég held að það megi fullyrða að afkoman í ár verði ekki
    lakari en í fyrra. Þau uppgjör hingað til benda sannarlega ekki til
    annars. Bankarnir geta því vel lagst á árarnar með öllum hinum við að ná
    stöðugleika í ríkisrekstrinum án þess að velta því yfir í verðlagið. Svo
    er gert ráð fyrir því að hækka virðisaukaskatt á baðlón en þau bera 11%
    virðisaukaskatt í dag á meðan flest annað á Íslandi ber 24%
    virðisaukaskatt. Rekstur baðlóna gengur vel og þeim hefur fjölgað hringinn
    í kringum landið. Blönduð leið af hagræðingu og nýrri tekjuöflun er því
    skynsamleg leið til að ná jafnvægi á ríkisrekstrinum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Samhliða þessu þarf auðvitað að skapa gott vaxtarumhverfi fyrir
    verðmætasköpun og þar mun atvinnustefna stjórnvalda spila lykilhlutverk.
    Einfaldari og skilvirkari stjórnsýsla mun einnig styðja við verðmætasköpun
    og aukin orkuöflun við samþykkt á nýjum rammaáætlunum og minna
    reglugerðarfargan hjálpar til. Við erum með gott fjárfestingarstig og
    boðað hefur verið til fjárfestingarþings á vegum nýja innviðafélagsins,
    Göng og brú, í næstu viku. Við höfum verið að fá góðar fréttir af
    Grundartanga en þar er Norðurál aftur farið að framleiða á fullum afköstum
    eftir bilunina í fyrrahaust og það munar um minna. Það er góður bati í
    stærstu útflutningsgreinunum okkar, það er hátt fiskverð og álverið
    hjálpar líka til.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Markmiðið með hallalausum fjárlögum er ekki
    markmiðið í sjálfu sér. Markmiðið er að stöðva skuldasöfnunina, ná niður
    verðbólgu og vöxtum, bæta vaxtakjör ríkisins, skapa svigrúm til
    uppbyggingar og tryggja að ríkissjóður hafi burði til að bregðast við
    þegar næsta áfall dynur yfir. Við vitum ekki hvort næsta stóra áfall verði
    náttúruhamfarir, heimsfaraldur eða enn eitt stríðið í Mið-Austurlöndum,
    tollastríð, alþjóðleg fjármálakreppa eða eitthvað sem við sjáum ekki
    fyrir. En við vitum að með eins lítið og opið hagkerfi og Ísland er þá
    þurfum við að vera viðbúin. Þess vegna þurfum við sterk ríkisfjármál,
    stöðugleika og ábyrgð í ríkisrekstri en það er forsenda þess að við getum
    varið lífskjör fólks þegar á reynir og fjárfest þegar tækifæri skapast. Ég
    hlakka til samstarfsins í fjárlaganefnd við vinnu þessa
    frumvarps.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>