<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T14:30:46" skst="JGH" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 14:31:53 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T14:30:46">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Örnu Láru Jónsdóttur fyrir
    hennar framsögu hér. Ég verð að segja að mér finnst það svolítið sérstök
    skilaboð þegar er verið að tala um að nú sé verðbólga að hjaðna,
    sérstaklega í ljósi þess og því er fagnað að hér sé eiginlega allt að
    verða botnfrosið, að verðmæti fasteigna sé að rýrna og að atvinnulífið sé
    að dragast saman og því er fagnað því að þá eigi verðbólgan að fara að
    hjaðna þegar allt er botnfrosið og eignir fólks rýrna í verði.</ns:mgr>

    <ns:mgr>En þá langar mig að spyrja hv. þingmann: Af hverju í ósköpunum eru
    þá allar krónutöluhækkanir 5,2%? Af hverju var ekki miðað við 2,5%,
    verðbólgumarkmiðið? Greiningaraðilar gerðu ráð fyrir 4,6–4,8% en
    ríkisstjórnin, sem segir að verðbólgan sé að hjaðna, ætlar að koma hér með
    krónutöluhækkanir upp á 5,2%. Finnst hv. þingmanni það vera til þess að
    draga úr verðbólgunni að koma með 5,2% gjaldahækkanir?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>