<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T14:32:15" skst="ArnaJ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 14:33:13 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T14:32:15">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið, sem
    var nú bara mjög gott. Ég held kannski að það endurspegli svolítið hvernig
    við horfum á hlutina. Ég var auðvitað ekki að fagna því að raunvirði hefði
    lækkað og fagna því að hagkerfið hefði kælst en það þurfti kannski að kæla
    það örlítið niður. Það má náttúrlega ekki kæla það of mikið niður af því
    að hagvöxtur undanfarinna ára hefur verið keyrður á fólksfjölgun einni
    saman með tilheyrandi álagi á innviðina, á vegina okkar, á
    heilbrigðiskerfið, á húsnæðismarkaðinn, og það er ekki efnahagsstefna sem
    gengur til lengdar. Við þurfum að ná jafnvægi í þetta. Ég veit ekki
    hvernig hann fór að því að skilja það þannig að ég hefði verið að fagna
    þessu sérstaklega. En þetta eru aðstæðurnar sem verða til þess að
    verðbólga lækkar. Ég var eingöngu að benda á það. Hún er ekki farin að
    lækka en það eru öll merki um að hún lækki þegar þessar aðstæður eru uppi.
    Það má sjá í þeim minnisblöðum sem liggja fyrir og er farið vel yfir í
    fjárlögunum sem við erum hér að ræða þannig að það má bara benda á
    það.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>