<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T14:33:23" skst="JGH" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 14:34:41 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T14:33:23">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Örnu Láru Jónsdóttur fyrir
    svarið þó að hún hafi í rauninni ekki svarað spurningunni. En það er samt
    ágætt að benda á að þegar er verið að tala um að hér hafi verið
    innflutningur á fólki til þess að vinna störf þá er það t.d. fyrir
    ferðaþjónustuna sem hefur skapað 600 milljarða í útflutningstekjur og þar
    hafa yfir 200 milljarðar skilað sér beint í skatta og opinber
    gjöld.</ns:mgr>

    <ns:mgr>En mig langar að spyrja hv. þingmann, sem er þingmaður
    Norðvesturkjördæmis og býr á Vestfjörðum. Nú er verið að hækka
    kílómetragjaldið um tæplega 16%. Þetta mun hafa áhrif á bílaleigurnar
    sérstaklega og fyrir fjórðung eins og Vestfirði, alveg eins og það
    kjördæmi sem ég kem úr, Norðausturkjördæmi — þetta mun hafa áhrif á
    ferðaþjónustuna hjá þeim sem búa lengst í burtu. Þetta mun líka hafa áhrif
    á fyrirtækin úti á landi sem horfa upp á hækkaðan flutningskostnað og
    þetta mun líka hækka aðföng inn til okkar kjördæma. Mig langar að spyrja
    hv. þingmann: Hvernig í ósköpunum getur hún stutt að hækka
    kílómetragjaldið um 16% þegar afleiðingarnar liggja algerlega ljósar
    fyrir, m.a. á íbúa hennar kjördæmis?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>