<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T14:34:48" skst="ArnaJ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 14:35:58 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T14:34:48">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Forseti. Ég vil þakka þingmanninum aftur fyrir andsvarið. 16%. Það
    má líka segja að við erum að hækka kílómetragjaldið um 1 kr. úr 6,95 í
    8,05, þ.e. 1,10 kr. Há prósentutala virðist oft vera mjög mikið en kannski
    er þetta nú bara 1 kr. eins og í þessu tilfelli. Til að byggja undir
    grunninnviði þessa lands, sem er samgöngukerfið, þá verðum við að sækja
    tekjur. Kílómetragjaldið er ein leið til þess. Sú ríkisstjórn sem hv.
    þingmaður studdi, geri ég ráð fyrir, sem var sú síðasta, vildi líka sækja
    tekjur af samgöngum en það var óútfært af því að þeir fóru ekki í
    kílómetragjaldið. Mér finnst kílómetragjaldið vera sanngjarnt af því að
    það er þannig að þeir borga sem nota og allar greiningar sem við höfum
    gert sýna það að landsbyggðin er að koma betur út úr þessu en
    höfuðborgarsvæðið af því að landsbyggðin keyrir minna. En mér finnst líka
    bara sanngjarnt að ferðamenn greiði hér fyrir að nota vegina okkar eins og
    allir aðrir, það er sanngjarnt og bara sanngirnismál að mínu mati þannig
    að ég hef ekki áhyggjur af því.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>