<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T14:36:18" skst="NTF" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 14:37:33 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T14:36:18">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Mig langar að spyrja hv. þingmann varðandi
    hagnaðarhlutdeildina í ferðaþjónustunni allri. Nú var hagnaðurinn 20
    milljarðar af íslenskri ferðaþjónustu árið 2024 og það sem er verið að
    leggja á hana hér eru 10–11 milljarðar, örugglega nær 11 milljörðum ef
    allt er tekið, í það minnsta. Er ekki farið svolítið bratt í þetta þegar
    við þekkjum hvernig hagnaðurinn er í greininni? Ferðaþjónustan hefur
    raunverulega umbreytt ríkisfjármálunum í tekjum síðustu 10–15 ár,
    virðisaukinn og skattspor greinarinnar. Hversu langt eigum við að ganga á
    þessa grein og um leið halda því þannig að það sé einhver samkeppnishæfni
    eftir í henni til rekstrar? Hún virðist einhvern veginn vera orðin
    svolítið bitbeinið, að það eigi að ráðast á hana þetta árið.</ns:mgr>

    <ns:mgr/>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>