<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T14:37:37" skst="ArnaJ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 14:38:54 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T14:37:37">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir svarið og ég vil taka
    undir með honum. Ég er sammála honum í því að ferðaþjónustan sé alveg
    gríðarlega mikilvæg og öflug atvinnugrein og bara orðin burðug, enda
    skapar hún einna mestan gjaldeyri inn í landið. Við eigum að lyfta
    ferðaþjónustunni upp af því að hún er að skila miklu og ekki síst á
    landsbyggðinni þar sem hún hefur ýtt undir mikla fjölbreytni í störfum. En
    ég vil gera athugasemdir við þessa framsetningu: Það er ekki verið að fara
    að skattleggja arðinn af ferðaþjónustunni. Það á að fara að hækka
    virðisaukaskatt á baðlón eingöngu þannig að þau verði í sama þrepi og
    nánast allir aðrir, svo þau njóti ekki skattafsláttar heldur séu á við
    aðra starfsemi hér í landinu. Mér finnst þetta sérkennileg framsetning hjá
    hv. þingmanni því að jafnvel þótt ferðaþjónusta sé mikilvæg, af hverju á
    hún ekki að vera í sama skattþrepi og hinar atvinnugreinarnar? Hver er
    sanngirnin í því að þú borgir 11% virðisaukaskatt til að fara ofan í
    baðlón en borgir 24% til að kaupa miða í bíó? <ns:bjalla/> Hver er
    sanngirnin í því? Ferðaþjónustan er burðug og hún hefur verið að sýna góða
    arðsemi og ég tel að hún geti borið þetta.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>