<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T14:39:01" skst="NTF" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 14:40:08 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T14:39:01">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég er orðinn svolítið þreyttur á þessu orði sem er
    búið að vera inni í fjárlögunum frá sirka árinu 2011: skattstyrkir. Þetta
    er sífellt svona. Þetta var komið inn í vinstri stjórninni 2009–2013,
    væntanlega 2011, skattstyrkir. Ferðaþjónustan kemur fram í
    fjárlagafrumvarpinu, skattstyrkir. Undir það fellur t.d. gistiþáttur
    ferðaþjónustunnar, svo öllum sé ljóst hvernig hæsta talan verður til, en
    það er bara þannig alls staðar í Evrópu að gistingin er í neðra þrepi
    virðisaukans. Þjóðverjar lækkuðu niður í neðra þrep bara fyrir örfáum
    árum. Það er öll Evrópa þarna. Er það næsta sem við þurfum að óttast
    kannski að Samfylkingin, Viðreisn og Flokkur fólksins boði það að fara með
    gistiþátt ferðaþjónustunnar upp í efra þrepið á skjön við allt og alla í
    Evrópu þar sem neðra þrepið ræður för, 11–14%?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>