<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T14:40:17" skst="ArnaJ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 14:41:09 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T14:40:17">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Við erum bara að tala um baðlónin hér, svo það
    sé alveg á hreinu. Við erum bara að tala um baðlón sem eru í neðra þrepi.
    Það er nú búið að dreifa bandorminum hérna þar sem tekjuráðstafanir líta
    dagsins ljós og þar er ein samanburðargreining á baðlónum á Norðurlöndunum
    og þau eru líka í efra þrepi. Þannig að hér er verið að ræða
    samkeppnishæfni atvinnugreina og bara ágætt að hafa það í huga. Við erum
    ekki að tala um gistingu. Við erum bara að tala um að hækka baðlónin sem
    eru lúxusvara, svo það sé sagt, og það ætti því að hafa minni áhrif á
    almenning. Ég bið hv. þingmann að vera ekki að blanda gistingu inn í þetta
    því að við erum bara að tala um baðlónin.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>