<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T14:41:21" skst="GÞÞ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!--file:///C:/Users/steinunnh/AppData/Local/Temp/xxe15990646212797609564_d/__doc.html 2026-09-10 14:42:33 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T14:41:21">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna og það kom
    að því að við fundum einhvern sem var ánægður með fjárlagafrumvarpið. Því
    meiri skattar, því glaðari verður hv. þingmaður, eins og frægt er orðið.
    En ég vildi kannski spyrja hv. þingmann af því að hv. þingmaður hlýtur að
    fá þessa spurningu. Samfylkingin var kosin út á það að lækka vexti og
    verðbólgu. Nú hefur það augljóslega ekki gengið. Hvar er planið og hvar er
    sleggjan? Hvernig svarar hv. þingmaður því fólki sem kaus flokkinn út af
    þeirri forsendu? Og sömuleiðis líka, virðulegur forseti, þá var það mjög
    skýrt, það gat ekki verið skýrara, að Samfylkingin lofaði því að hækka
    ekki skatta. Hverju svarar hv. þingmaður þeim kjósendum sem kusu flokkinn
    út á þessi loforð?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>