<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T14:43:37" skst="GÞÞ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 14:45:02 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T14:43:37">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið og það var
    ærlegt. Hv. þingmaður svaraði ekki varðandi skattana því að Samfylkingin
    lofaði því að hækka ekki skatta. En ég nefni þá líka við hv. þingmann að
    við settum lög um opinber fjármál. Gríðarlega mikill undirbúningur á bak
    við það. Þar vorum við að taka upp það verklag sem er í þeim löndum sem
    við viljum bera okkur saman við. Ókei, ég ætla ekkert að fara í það að
    þessi ríkisstjórn byrjaði á því að brjóta þau lög, látum það liggja milli
    hluta. Síðan er inni í því fjármálaráð, við erum með færustu sérfræðinga,
    tvo doktora í hagfræði og einn master, sem hafa komið með leiðbeiningar
    til stjórnvalda um hvernig þau eiga að haga málum. Það er ekkert farið
    eftir álitsgerð fjármálaráðs. Fjármálaráð bendir á að það er ekki nóg að
    vera með einhvern næfurþunnan afgang á fjárlögum meðan menn eru að safna
    skuldum. Fjármálaráð bendir á að ríkisstjórnin hafi gengið fram með
    kerfisbreytingar sem gera það að verkum að það þarf að endurskoða
    stöðugleikaregluna og kallar þetta ósjálfbærni í fjármálum. Fjármálaráð
    bendir á fleiri þætti sem ekki er tekið tillit til. <ns:bjalla/> Heldur
    hv. þingmaður að það geti tengst eitthvað; þegar menn fara ekki eftir
    ábendingum færustu sérfræðinga og verðbólgan lækkar ekki? </ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>