<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T14:45:12" skst="ArnaJ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 14:46:27 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T14:45:12">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Það er nú kannski dálítið ófyrirleitið af
    ráðherra í ríkisstjórn sem skapaði hér halla upp á 866 milljarða að halda
    þessu fram. Það sem við erum nefnilega <ns:frammíkall/> að eiga við er
    fortíðarvandi fyrri ríkisstjórnar og gegndarlausan halla sem hér hefur átt
    sér stað sem við erum að reyna að stoppa núna og stöðva. Komdu með okkur í
    verkefnið, hv. þingmaður. <ns:frammíkall skst="GÞÞ">Svaraðu spurningunni.
    </ns:frammíkall>Ég er að svara henni ef þú leyfir mér að komast að. Bíddu
    nú við, hvar var ég? Þú settir mig alveg út af laginu. Af hverju erum við
    að safna skuldum? Af því að við erum að eiga við fortíðina. Það er
    auðvitað sjálfsagt að fara eftir fjármálaráði og ég hlusta mikið á það og
    ég tel að við höfum farið að stóru leyti eftir ábendingum fjármálaráðs.
    Mér finnst það vera mikilvægt og við eigum að sjálfsögðu að hlusta á það
    og reyna að fara eftir því sem best getur orðið. En það er auðvitað
    áhugavert að heyra hv. þingmann tala núna um lánsfjárjöfnuðinn og ég veit
    að við eigum eftir að ræða það betur í fjárlaganefnd. Ég nenni ekki að
    vera alltaf að horfa í fortíðina en vandinn sem við erum í í dag er vegna
    ákvarðana sem voru teknar í fortíðinni og við erum að eiga við það
    núna.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>