<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T14:46:35" skst="NMG" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 14:47:43 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T14:46:35">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Það kann að vera að sumum þyki allt í lagi að hækka
    skatta á fólk og fyrirtæki. En þessi ríkisstjórn gengur allt of langt í
    þeim efnum og sérstaklega eftir að hafa lofað að hækka ekki skatta. Hvað
    gerir hún? Hún fer í eitthvað sem hún telur til vinsælda fallið af því að
    fyrirtækin eru óvinsæl. Það voru veiðigjöldin í fyrra og nú eru það
    bankarnir. Mig langaði því að spyrja, af því að hv. þingmaður sagði að það
    væri nóg til hjá bönkunum: Hvað telur hv. þingmaður að sé eðlilegur
    hagnaður bankanna? Hún verður, frú forseti, að setja þessar tölur í
    eitthvert samhengi. Það er ekki hægt að tala bara um hagnað bankanna
    algjörlega samhengislaust. Ríkisstjórnin þarf að svara: Hvað er eðlilegur
    hagnaður? Þá er hægt að segja hversu mikinn skatt á að taka. Hvað telur
    hv. þingmaður að sé eðlilegur hagnaður bankanna?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>