<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T14:47:49" skst="ArnaJ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 14:49:07 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T14:47:49">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina
    og andsvarið. Þetta var nú svo sem ekki nein óvinsælda- eða
    vinsældakönnun, hvar ætti að bera niður. Það var bara verið að horfa á þær
    greinar sem hafa borð fyrir báru og svo var líka horft til þeirra
    ráðlegginga sem við höfum fengið frá OECD varðandi skattstyrkina, þá er ég
    auðvitað að horfa á baðlónin. Hún spyr: Hvað er eðlilegt að bankarnir hafi
    í hagnað? Það má líka segja að bankarnir settu sér sjálfir arðsemiskröfur
    og þeir fóru langt umfram það. Það er kannski eitthvert viðmið, hvaða
    kröfur þeir settu sér og það var þarna eitthvað umfram og það má kannski
    setja það í samhengi við það sem fjárlagafrumvarpið og bandormurinn ganga
    út á. Það eru þær kröfur sem þeir setja. En ég myndi nú segja að 94
    milljarðar af þessum þremur bönkum séu talsvert mikið og það sé nóg til.
    Það er bara mín skoðun og hv. þingmaður kann að hafa aðra skoðun á því.
    <ns:bjalla/> Mér finnst það vera eðlilegt að bankarnir skili meira til
    samfélagsins af því að íslensku bankarnir hafa tekjur sínar fyrst og
    fremst af íslenskum heimilum og íslenskum fyrirtækjum. </ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>