<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T14:49:13" skst="NMG" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 14:50:40 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T14:49:13">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Aftur er talað um 94 milljarða algjörlega
    samhengislaust. Ég ætla ekki að eyða seinna andsvari í að ræða það aftur
    því ég á ekki von á betra svari þó ég spyrji aftur þannig að ég ætla að
    snúa mér að baðlónunum sem hv. þingmaður talaði hér um að væru að fá
    skattstyrki. Þá spyr ég: Þekkja hv. þingmenn meiri hlutans hvernig þessu
    var háttað? Hér árið 2014 var enginn virðisaukaskattur á baðlón. Það var
    ákveðið að fara með hann upp í 11% til samræmis við annan virðisaukaskatt
    þegar kom að ferðaþjónustu. Af hverju var ekki farið í 24%? Jú, fyrst og
    fremst út af samkeppnissjónarmiði, samkeppni við baðlón erlendis sem eru
    mjög oft með minni virðisaukaskatt en efra þrep skattsins. Þetta er ekki
    séríslenskt og þess vegna fór skatturinn í þetta, þetta eru
    samkeppnissjónarmið. Þess vegna vil ég líka spyrja hv. þingmann,
    <ns:bjalla/> því að árið 2014 þegar skatturinn hækkaði þá tók það gildi 1.
    janúar 2016 til að gefa greininni svigrúm: Er ekki eðlilegt að gefa
    ferðaþjónustunni svigrúm einhvern tíma áður en þetta tekur gildi og hefur
    hv. þingmaður engar áhyggjur af samkeppnisstöðu greinarinnar?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>