<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T14:50:46" skst="ArnaJ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 14:52:09 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T14:50:46">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina.
    Hún spyr hér um fyrirsjáanleikann. Þetta var auðvitað kynnt í
    fjármálaáætlun þannig að það var þó einhver tími fyrir greinina að hugsa
    þetta. Hún spyr líka hvernig þetta sé á Norðurlöndunum og það kemur hér
    fyrir í bandorminum á bls. 18, sem ég og hv. þingmaður eigum eftir að ræða
    vel í efnahags- og viðskiptanefnd þar sem bandormurinn verður til umræðu.
    Þar kemur fram að skattaleg meðferð baðlóna er ekki eins, með leyfi
    forseta:</ns:mgr>

    <!--https://www.althingi.is/altext/pdf/158/s/0002.pdf-->

    <ns:mgr>„Í Danmörku fellur skattskyld sambærileg þjónusta undir almennt
    skatthlutfall virðisaukaskatts. Í Svíþjóð og Finnlandi ber þjónusta sem
    einkum felur í sér afþreyingu, upplifun eða slökun almennt virðisaukaskatt
    samkvæmt almennu skatthlutfalli. Í Noregi ber skattskyld bað- og
    heilsulindaþjónusta virðisaukaskatt samkvæmt almennu skatthlutfalli
    …“</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þetta munum við kannski fara dálítið yfir í nefndinni. Hér erum
    við auðvitað bara að horfa á afmarkaða grein ferðaþjónustunnar. Við erum
    bara að horfa á baðlónin en þau hafa líka verið að skila góðum afgangi.
    Svo mætti líka horfa til, eins og ég hef nefnt hér í ræðum áðan, bara
    aðgangs að bíói: <ns:bjalla/> Af hverju á að vera minni virðisaukaskattur
    á bíómiða heldur en á miða í baðlón? Mér finnst það spurning sem hv.
    þingmenn ættu að spyrja sig.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>