<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T14:52:21" skst="JPZ" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 15:02:28 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T14:52:21">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég sjálfur var ekki í andsvörum áðan við hv. þm. Örnu
    Láru Jónsdóttur, en langar að benda þingmanninum á að skoða ársreikninga
    baðlóna. Þau eru mjög, mjög misjöfn og reksturinn í járnum hvað mörg
    þeirra varðar og þessi skattahækkun eða hækkun á virðisauka mun alveg
    örugglega setja mörg þeirra í mikinn vanda og breyta áætlunum þeirra um
    frekari vöxt á þeim svæðum þar sem þau eru. Þetta á sérstaklega við um
    baðlón úti á landi.</ns:mgr>

    <!--https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-06-11-bodar-hallalaus-fjarlog-sama-hvad-thad-kostar-477774-->

    <ns:mgr>En að minni ræðu hér. Hæstv. forsætisráðherra, Kristrún
    Frostadóttir, sagði hér í sal þessum 11. júní síðastliðinn, með leyfi
    forseta: „Við munum skila hallalausum fjárlögum 2027 sama hvað það kostar.
    “ Sama hvað það kostar. Hver segir svona? Sama hvað það kostar. Mér var
    hugsað til þessara orða áðan á hlaupabrettinu á meðan ég hlustaði á ræður
    þingmanna í eyrunum. Síðasta vetur ákvað ég að koma mér í betra form, var
    orðinn tæp 118 kíló, sem er ekki ásættanlegt, og ég setti mér skýr markmið
    um að komast niður fyrir 100 kíló, þriggja stafa töluna, fyrir sumarið.
    Það tók á, þurfti aga, þrautseigju og aðhald, en mér tókst það, sjálfum
    mér til mestrar gleði, fyrir 1. júní. Að þessu leyti get ég samsamað mig
    við markmið ríkisstjórnarinnar. Hallalaus fjárlög, niður fyrir 100 kíló 1.
    júní. Ég vildi komast undir 100 kíló. Ríkisstjórnin vildi komast á núllið.
    En það er einn stór munur. Það var ekki fyrir mig: Sama hvað það kostar.
    Ef ég hefði staðið í 109 kílóum seint í maí, þá hefði mér ekki dottið í
    hug, sama hvað það kostaði, að skera af mér höndina til að komast undir
    100 kílóa markið. Ég hefði getað stigið á vigtina eftir þann atburð og
    sagt: „Markmiðinu náð.“ Talan á vigtinni hefði verið rétt og ég hefði náð
    skammtímamarkmiði með að skaða mig til framtíðar. Og það er nákvæmlega
    spurningin sem við eigum að spyrja um þessi fjárlög. Talan, að komast upp
    úr mínusnum — skiptir það engu máli hvernig hún næst?</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ríkisstjórnin ætlar að sækja 34,1 milljarð kr. með skattbreytingum
    og öðrum tekjuráðstöfunum og reikningurinn fer að hluta til til fyrirtækja
    og heimila. Ef við náum 5 milljarða afgangi með ráðstöfununum, þá munum
    við veikja samkeppnishæfni, draga úr fjárfestingum, minnka hvata til
    verðmætasköpunar og þá getur langtímareikningurinn orðið miklu stærri en
    skammtímaávinningurinn. Sama hvað það kostar. Fjárlagafrumvarpið
    viðurkennir þetta raunverulega sjálft og það segir orðrétt, með leyfi frú
    forseti: „Þróun framleiðni, sem einnig er undirliggjandi drifkraftur
    kaupmáttarþróunar, hefur heldur ekki verið hagstæð undanfarið …“ Þess
    vegna megum við ekki höggva í framtíðarframleiðslugetu þjóðarinnar til
    þess eins að geta sýnt fram á 5 milljarða kr. afgang, sama hvað það
    kostar. Það væri eins og að höggva af sér útlim til að ná réttri tölu á
    vigtinni. Markmiðinu væri náð, en við værum verr sett en í upphafi.
    Hallalaus fjárlög eru ágætismarkmið, en ekki sama hvað það
    kostar.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Mig langar líka að setja hallalaus fjárlög
    aðeins í annað samhengi sem fær enga athygli, eiginlega enga.
    Ríkisstjórnin ætlar að skila 5 milljarða afgangi og gerir mikið úr því. En
    í fjárlagafrumvarpinu sjálfu er talað um framleiðni og þar er beinlínis
    sagt, með leyfi frú forseta, eins og ég nefndi áðan: „Þróun framleiðni,
    sem einnig er undirliggjandi drifkraftur kaupmáttarþróunar, hefur heldur
    ekki verið hagstæð undanfarið …“ Og frumvarpið gengur lengra. Það setur
    upp sérstaka bjartsýna sviðsmynd þar sem meiri framleiðni leiðir til meiri
    hagvaxtar, hagvöxtur verður um 1,5 prósentustigum meiri og afkoma
    ríkissjóðs 20 milljörðum kr. betri.</ns:mgr>

    <ns:mgr>En hvað er framleiðni, fyrir þá sem eru að horfa hér og heyra
    þetta orð? Það er ekki öllum gefið að vera með þessi hagfræðihugtök á
    hreinu. Hún snýst einfaldlega um það að við náum að skapa meiri verðmæti
    fyrir vinnuna okkar og þegar það tekst, þá verða fyrirtækin sterkari,
    launin geta hækkað og lífskjör batnað og samfélagið hefur úr meiru að
    spila til að standa undir skólum, heilbrigðiskerfi og velferð. Þess vegna,
    frú forseti, skil ég ekki stærstu viðvörun sem við höfum fengið hvað
    framtíðarframleiðni varðar. Þau viðvörunarljós og þau rauðu flögg eru
    ekkert hér til umræðu. OECD sagði um Ísland í fyrra að meira en 40 stiga
    lækkun á meðalnámsárangri í PISA frá 2006 til 2022 gæti dregið úr
    heildarframleiðni landsins um að minnsta kosti 5%, meira en 5%. Til að
    setja stærðargráðuna í samhengi eru 5% af landsframleiðslu næsta árs hátt
    í 280 milljarðar. Auðvitað er OECD ekki að segja að 280 milljarða
    reikningur komi inn um lúguna á næsta ári en þetta snýst um
    framleiðslugetu þjóðarinnar til lengri tíma. Þetta er meira en 50 sinnum
    stærri tala en 5 milljarða afgangurinn sem er verið að ræða. Síðan OECD
    skrifaði þetta um PISA-niðurstöðurnar, þá hafa þær versnað enn frekar.
    Munum það að PISA er að mæla STEM-greinar þar sem við stöndum sérstaklega
    höllum fæti. Og þess vegna spyr ég hæstv. ráðherra, sem er líklegast að
    hlusta: Ef framleiðni er svona mikilvæg og hún fær sérstaka sviðsmynd í
    fjárlagafrumvarpinu, hvers vegna er þá hnignun menntakerfisins ekki
    meðhöndluð sem alvarleg efnahagsleg áhætta? Hvers vegna er algjörlega
    skautað fram hjá þessum niðurstöðum og ekkert um þær rætt hér í pontu?
    Menntun er ekki bara útgjaldaliður. Hún er ein af undirstöðum
    framtíðarframleiðni, hagvaxtar og þar með framtíðartekna
    ríkissjóðs.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég tel það rétt markmið að reka ríkissjóð án
    halla en ekki sama hvað það kostar. Hverjir greiða reikninginn? Heimilin
    og fyrirtækin, rúma 30 milljarða. Í þessari tölu er fjöregg
    landsbyggðarinnar, ferðaþjónustan, en þangað á að sækja 10–11 milljarða.
    Hér er rétt að staldra við. Ferðaþjónustan er ekki einhver ótæmandi
    skattstofn. Hún er atvinnugrein í alþjóðlegri samkeppni og þá sérstaklega
    auðvitað við önnur norræn ríki eins og Noreg. Hún selur vöru sem
    ferðamaðurinn getur einfaldlega ákveðið að kaupa annars staðar.
    Ferðaþjónustan er ekki einhver hliðargrein í íslensku efnahagslífi. Hún er
    ein af meginstoðum þess. Á síðasta ári skapaði greinin um 630 milljarða í
    gjaldeyristekjur og þriðjung af öllum útflutningi vöru og þjónustu á
    Íslandi. Um 31.000 störf tengjast greininni og skattspor hennar er um 200
    milljarðar. Ferðaþjónustan hefur skapað störf og fjárfestingu þar sem
    fjölbreytt atvinnulíf hefur oft skort. Hér ætlar kyrkislangan,
    ríkisstjórnin, að kreista súrefni úr þessum samfélögum. Ferðaþjónustan
    heldur úti veitingastöðum, gistingu, afþreyingu og annarri þjónustu sem
    nýtist ekki bara ferðamönnum heldur samfélögunum sjálfum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Mögulega kemur einhver hér upp og segir: Við erum ekki að tala um
    ferðaþjónustuna. Jú, menn eru að gera það. Við erum bara að tala um
    baðlón. Við skulum átta okkur á því að baðlón, eins og ég nefndi hér í
    upphafi, eru í ólíkum rekstri. Okkur Íslendingum hefur tekist að skapa
    ákveðið menningarfyrirbæri í kringum baðlónin eins og sundlaugarnar okkar
    og þetta eru þvílíkir ferðamannaseglar út um allt land, bæði fyrir erlenda
    ferðamenn og íslenska. Ef við ætlum að fara að kreista súrefnið úr þessum
    stöðum þá erum við á vondum stað.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Við erum mikið í umbúðastjórnmálum, frasapólitík.
    Verðmætasköpunarhaust, sleggja, verkstjórn, aðhald á tekjuhlið. Kannast
    einhver við þessa frasa? Ríkissjóður skapar ekki verðmætin sem standa
    undir samfélaginu. Fólkið og fyrirtækin í landinu gera það.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>