<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T15:02:38" skst="ArnaJ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 15:04:22 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T15:02:38">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna sína og
    ekki síst hvað hún var persónuleg. Ég heyri það að við eigum við sama
    vanda að etja og við ættum kannski bara að fara saman hérna niður í
    kjallara og reyna að eiga við okkar mál. En ég hef nú farið nógu oft af
    stað í átök til að vita að maður verður að setja sér raunhæft markmið og
    setja sér einhverjar vörður. Það er það sem við erum að gera með
    efnahagsmálin.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég skil alveg hvaðan hv. þingmaður er að koma varðandi hallalaus
    fjárlög, sama hvað það kostar. Það má ekki kosta of mikið. Hann talar hér
    um 30 milljarða. Þá langar mig að velta því upp við þingmanninn hvort hann
    hafi velt því fyrir sér hvað það muni skipta alla landsmenn gríðarlega
    miklu máli að ná vaxtastiginu niður og verðbólgunni, hvort hann telji það
    ekki vera meiri ávinning fyrir land og þjóð að ná vöxtum og verðbólgu
    niður heldur en að sleppa þessum nýju tekjuráðstöfunum sem við erum að
    eiga við eins og í baðlónunum. Við erum ekki að tala hér um gistinguna,
    við erum bara að tala um baðlónin. Telur hann það ekki vera skynsamlegri
    leið að fara í svona sértæka tekjuöflun heldur en að eiga við alla
    landsmenn? Mig langar að biðja hann að velta því fyrir sér hvort
    ávinningurinn sé ekki meiri fyrir landsmenn alla að taka þetta svolítið
    stíft. Það er, eins og hann þekkir í öllum erfiðum átökum, erfitt meðan á
    því stendur en maður uppsker svo sannarlega. Er ekki betra að taka þetta
    bara á sig núna og horfa þá til framtíðar og við getum þá létt undir með
    fyrirtækjum og heimilum þessa lands?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>