<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T15:04:32" skst="JPZ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 15:06:45 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T15:04:32">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Örnu Láru Jónsdóttur fyrir
    ágætisandsvar. En í spurningu hv. þingmanns kristallast kannski einmitt
    hvað stjórnmálaskoðanir okkar eru ólíkar. Það er hægt að ná niður vöxtum
    og verðbólgu án þess að skattleggja allt í drep. Og ef menn ætla að fara í
    skattahækkanir — ég tel að menn skattleggi ekki til velsældar, ég held að
    það séu fá ríki sem hafi gert það — þá þarf að ígrunda þær vel og það þarf
    að vera fyrirsjáanleiki. Ég er ekki að segja að það eigi að vera engir
    skattar í velferðarsamfélagi eins og okkar en hér birtast þeir nánast eins
    og skrattinn úr sauðarleggnum. Jú, jú, það er í fjármálaáætlun, en við
    verðum að hafa meiri fyrirsjáanleika. Ég vil leggja áherslu á að leysa
    þann kraft úr læðingi sem býr innra með fólki en ekki hefta það, ekki
    draga úr hvötum til framkvæmda og athafna eins og skattar gera. Skattar,
    gjöld, refsingar, þetta er allt til að minnka þessa hegðun. Til dæmis
    þegar menn keyra of hratt þá eru þeir sektaðir. Til hvers? Til að menn
    keyri hægar og hætti að keyra of hratt. Það sama á við um skatta. Það að
    skattleggja eitthvað sérstakt kemur til með að draga úr þeirri hegðun.
    Auðvitað kann það að vera leið ríkisstjórnarinnar að bara kæla allt með
    því að skattleggja algjörlega í drep. En ég myndi benda hv. þingmanni á að
    draga úr umsvifum ríkisins því það eru ríkisútgjöldin sem á endanum skapa
    bæði verðbólgu og svo aukna vexti í kjölfarið. <ns:bjalla/></ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég veit ekki alveg hvort ég svaraði spurningu hv. þingmanns en
    mögulega get ég svarað henni þá í seinna andsvari.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>