<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T15:06:52" skst="ArnaJ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 15:08:54 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T15:06:52">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég vil þakka þingmanninum fyrir svarið og það
    er alveg augljóst að við horfum á þetta með ólíkum augum. Það er líka allt
    í lagi og það er bara eins og hlutirnir eru. Að skattleggja í drep er
    einhver frasi sem maður hefur heyrt, það sé ekki hægt að skattleggja til
    velsældar, sagði formaður Sjálfstæðisflokksins hér. Ég deili því nú ekki
    með henni af því að það eru einmitt þessi norrænu velferðarríki sem hafa
    einmitt verið með hærri skatta en á Íslandi sem hafa gengið rosalega vel
    og þar sem ójöfnuður er minnstur. Það eru samfélög sem ég horfi til þannig
    að við kannski horfum á þetta með ólíkum augum. Ég lít ekki svo á að með
    því að fara í nýjar tekjuráðstafanir, setja á bankaskatt þar sem er nóg
    til og afnema skattafslátt á baðlón, séum við að skattleggja Ísland í
    drep. Það er bara svo fjarri lagi. Við erum að sækja tekjur þangað sem þær
    eru svo að við þurfum ekki að leita í vasa almennings. Auðvitað hefði
    verið einfaldast að hækka bara tekjuskattinn. En við erum ekki að fara þá
    leið. Margir hafa talað hér fyrir því að hækka fjármagnstekjuskatt. Það
    hefði líka verið mjög auðvelt en við erum ekki að fara þá leið. Við erum
    að fara þessa leið þar sem er svigrúm að mínu mati. Ég tek algjörlega
    undir með hv. þingmanni, við erum að hagræða í ríkisrekstri. Tvo þriðju
    erum við að taka með hagræðingu í ríkisrekstri, einn þriðji kemur inn með
    nýjum tekjuráðstöfunum. Eins og ég segi, við horfum kannski á verkefnið
    ólíkum augum en ég held að við ættum hins vegar að sammælast um það að það
    að ná hallalausum fjárlögum skapar trú á efnahagsstefnuna og þannig sköpum
    við skilyrði fyrir lækkun vaxta og verðbólgu.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>