<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T15:09:00" skst="JPZ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 15:11:34 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T15:09:00">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir. Ég ætla hv. þingmanni
    ekki að hafa verið að leggja mér orð í munn, að ég vilji ekki norræn
    velferðarsamfélög sem ég er nú almennt hlynntur. Við getum skapað verðmæti
    og stækkað kökuna. Það er sú leið sem ég kýs að fara, að veita fólki
    frelsi til athafna, hefta það ekki, draga ekki úr hvötum til að búa til
    eitthvað nýtt, nýsköpun. Fyrir það stendur Sjálfstæðisflokkurinn.
    Skattlagningar með litlum fyrirvara og skattlagningar almennt kunna að
    hljóma ágætlega fyrir fólk sem lendir ekki í þeim. En þeir sem eru búnir
    að búa til áætlanir, eru að hugsa um að gera eitthvað og fá síðan
    ófyrirséðar skattahækkanir í hausinn, þeir kippa að sér höndunum og það
    dregur máttinn úr samfélaginu. Ég held að allir geti horft inn á við og
    hugsað að ef þeim dytti eitthvað í hug og langaði að gera eitthvað, hvort
    sem það er á heimilinu eða fara út í rekstur eða gera eitthvað annað — að
    vita til þess að ef það er mögulegt að þeim gangi vel þá sé ríkið komið
    með lúkuna ofan í vasann hjá þeim um leið. Það er ekki gott samfélag. Við
    eigum að leyfa fólki að breiða út vængina og blómstra, skapa verðmæti og
    stækka kökuna og stækka þannig heildarskattspor landsins. Þetta er ákveðin
    hugmyndafræði sem allt of fáir hér í salnum virðast átta sig á og tileinka
    sér. Ferðaþjónustan kom hér með köku fyrir okkur. Við getum haft hana
    stærri. Við getum látið ferðaþjónustuna breiðast víðar út. <ns:bjalla/>
    Ætli það verði byggð fleiri baðlón núna einhvers staðar upp á hálendi eða
    annars staðar <ns:bjalla/> þar sem þau gætu mögulega verið þegar búið er
    að hækka þessa skatta? Mögulega ekki. Og fyrir vikið fá kannski ekki 40-50
    manns vinnu í þeim baðlónum sem ekki verða til. Þetta er mín sýn.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>