<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T15:11:45" skst="SigurjÞ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 15:13:53 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T15:11:45">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég ætla að byrja á því að þakka hv. þingmanni fyrir
    hressilega ræðu. Ég tek undir með honum að auðvitað er ekki hægt að ætla
    sér að ná þessum árangri burt séð frá því hvað hann kostar. En ég spyr á
    móti: Ef við ætlum ekki að gera þetta núna, þegar ytri aðstæður eru að
    mörgu leyti hagfelldar, hvenær ætlum við þá að ná niður þessum skuldahala?
    Ég fór yfir það í ræðu minni að það skiptir miklu máli. En auðvitað eru
    fleiri þættir í ræðunni sem ég tek undir með hv. þingmanni, eins og gildi
    menntunar. Þetta skiptir verulega miklu máli fyrir hagsæld þjóðarinnar til
    framtíðar, þ.e. þegar nemendur koma út í lífið, úr grunnskólum og
    framhaldsskólum, að þeir séu þokkalega undirbúnir undir framhaldsmenntun.
    Þetta skiptir verulega miklu máli fyrir framtíðina og jafnvel meira máli
    heldur en hvort verðbólgan sé 3 eða 4%. Ég tek undir þau
    sjónarmið.</ns:mgr>

    <ns:mgr>En af því að menn eru að ræða köku þá ætla ég að fara yfir í önnur
    matvæli, í fiskinn. Nú er staðreyndin sú, ef menn fara yfir hve mikið er
    veitt, t.d. af útgefnum veiðiheimildum íufsa, að þá er það bara rétt
    rúmlega helmingur af útgefnum veiðiheimildum núna umliðin ár. Hann er bara
    skilinn eftir alveg óveiddur. Og það er þá alveg tilvalið, sérstaklega
    fyrir hv. þingmenn sem vilja vera talsmenn frelsisins, að leyfa öðrum að
    veiða ufsann sem hafa ekki viðkomandi veiðiheimildir, fyrst þeir sem fá
    þeim úthlutað hirða ekki um að veiða hann. Það væri áhugavert að fá hér
    kökumeistara Sjálfstæðisflokksins til að fara yfir það hvort það sé ekki
    eðlilegt að gefa öðrum frelsi til að veiða fisk, <ns:frammíkall/> þeim sem
    hafa ekki veiðiheimildir, þegar þeir sem fá úthlutað veiðiheimildum ár
    eftir ár hirða ekki um það.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>