<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T15:16:16" skst="SigurjÞ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 15:17:42 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T15:16:16">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Það er
    greinilegt að það er vilji hjá þingmönnum Sjálfstæðisflokksins að veita
    stuðning þessu góða máli, þ.e. að gefa öðrum frelsi til að nýta
    aflaheimildir sem ekki eru nýttar af þeim sem fá þeim úthlutað ár eftir
    ár. Mér finnst það jákvætt og gott að heyra að hv. þingmenn
    Sjálfstæðisflokksins taki bara þokkalega vel í það. Mér finnst það.
    Núverandi ástand er bara vitleysa; að einhver fái aflaheimildir og nýti
    þær ekki. Við eigum auðvitað sem þingmenn að skoða einmitt þessa þætti og
    ef einhver er ekki að nýta sameiginleg verðmæti gefa þá öðrum kost á að
    gera það. Einnig ættum við að skoða öll rök, frú forseti, sem geta leitt
    til þess að við förum betur með sameiginlegar auðlindir, vinnum meira úr
    þeim þannig að fiskurinn fari frekar unninn á erlendan markað. Við ættum
    að koma með reglur sem stuðla að því að menn séu ekki að fara út með
    hráefni sem er unnið erlendis en koma því þannig fyrir að virðisaukinn
    verði til hér innan lands.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>